Skoðun

Ís­land: Landið sem unga fólkið flýr

Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Að flytja heim til Íslands var versta fjárhagslega ákvörðun sem ég hef tekið.

Við konan fluttum heim í ársbyrjun 2023 þegar við áttum von á okkar fyrsta barni. Í Kaupmannahöfn var lífið ljúft og þægilegt, það blundar þó alltaf í manni einhver heimþrá og sáum við tækifæri að flytja heim svo sonur okkar gæti alist upp í kringum fjölskyldu.

Síðan við fluttum heim er raunveruleikinn annar en við vorum vön í Danmörku. Við höfum aldrei haft minna á milli handanna, aldrei séð höfuðstól lána lækka jafn hægt, aldrei átt jafn lítið sparifé, aldrei þurft að leyfa okkur jafn lítið. Orðið „mánaðamót“ hafði aldrei dúkkað upp áður í okkar samtölum en er nú mest notaða orðið á heimilinu.

Þetta er óviðunandi ástand og áhrifin sem það hefur á unga fólkið í landinu okkar eru skelfileg. Ég hef átt allt of mörg samtöl undanfarna mánuði þar sem ungt fólk á besta aldri segir mér að þau sjái enga framtíð á Íslandi, séu bara að safna sér pening til að geta flutt úr landi og ætla aldrei að koma aftur. Á örskömmum tíma hætti Ísland að vera „stórasta land í heimi“ sem allir voru stoltir af og leið vel á.

Í dag er Ísland orðið landið sem unga fólkið flýr.

Sem nýbakaður faðir er erfitt að horfa uppá þessa þróun. Það vill enginn að barnið sitt upplifi þennan kalda raunveruleika sem blasir við ungu fólki, þar sem vonleysi fyrir framtíðinni ræður ríkjum.

Eftir að hafa upplifað þetta sjálfur í nokkra mánuði rann upp fyrir mér að ég þyrfti að taka ákvörðun:

Annaðhvort flytjum við aftur til Danmerkur eða ég reyni að stuðla að breytingum með beinum hætti.

Ég valdi að taka ábyrgð á framtíð Íslands, að byggja upp betra samfélag fyrir komandi kynslóðir og tek nú þátt í stofnun Freyfaxa, Ungliðahreyfingar Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi. Við ætlum að berjast fyrir því að Ísland verði samfélag þar sem börnin okkar fá tækifæri til að blómstra, þar sem ákvarðanir eru teknar á grundvelli staðreynda og langtímahugsunar. Þar sem skynsemishyggja ræður för.

Pólitík hefur verið allt of fjarlæg ungu fólki og það er tími til að breyta því. Pólitík snertir okkur öll og viljum við því hvetja alla á aldrinum 15 til 35 ára sem er annt um framtíð Íslands og vilja hafa jákvæð áhrif til að taka þátt í þessari baráttu með okkur.

Við í Freyfaxa munum halda nýliðakvöld þann 28. september kl. 20:00 í höfuðstöðvum Miðflokksins í Hamraborg 1. Þetta er tækifæri þitt til að vera hluti af breytingunum sem Ísland þarf á að halda.

Tökum höndum saman og byggjum betra Ísland fyrir okkur og börnin okkar – framtíðin bíður ekki.

Höfundur er varaformaður Freyfaxa, Ungliðahreyfingar Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×