Fótbolti

Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Alexandersson tók við Kortrijk í Belgíu í janúar á þessu ári.
Freyr Alexandersson tók við Kortrijk í Belgíu í janúar á þessu ári. Getty/Filip Lanszweert

Fótboltaþjálfarinn Freyr Alexandersson segir ekkert hæft í frétt belgíska blaðsins Het Laatste Nieuws um að hann hafi logið til um veikindi og ferðast til Bretlands að ræða um möguleika á nýju starfi.

Freyr hefur verið orðaður við stjórastarfið hjá velska félaginu Cardiff sem situr á botni ensku B-deildarinnar. Félagið er í eigu malasíska auðkýfingsins Vincent Tan sem einnig á belgíska félagið Kortrijk, sem Freyr hefur stýrt frá því í janúar á þessu ári með eftirtektarverðum árangri.

Het Laatste Nieuws sagði í grein í dag að Freyr væri mögulega að taka við Cardiff og að hann hefði ferðast til Wales í síðustu viku vegna þess. Blaðið bætti svo við að þjálfarinn hefði sagt leikmönnum að hann væri fjarverandi vegna veikinda.

Freyr segir á Twitter að þetta sé alrangt. Í svari við tísti um málið segir Freyr að einu lygarnar séu þær sem birtist í grein HLN. Að hann myndi aldrei skapa þær kringumstæður sem þar sé lýst.

Freyr sendi frá sér þetta svar við tísti frá Arne Vossaert, sem virðist vera stuðningsmaður Kortrijk.Skjáskot/Twitter

Vísir hefur ekki náð tali af Frey í dag.

Yfirlýsing frá Kortrijk: Furðu lostin yfir ósönnum fréttum

Uppfært kl. 13.45: Kortrijk hefur nú birt yfirlýsingu á heimasíðu sinni vegna málsins og segir félagið alrangt að Freyr sé á förum.

„KVK og þjálfarinn Freyr Alexandersson voru furðu lostin við að heyra af ósönnum fréttaflutningi í ýmsum miðlum. Alexandersson var ekki í Wales í síðustu viku og mun halda áfram sem þjálfari KV Kortrijk,“ segir í tilkynningunni.

„Ég er ekki í viðræðum við Cardiff og það stendur ekki til að fara neitt. Með stuðningsmönnum, leikmönnum og starfsfólki munum við vinna ötullega að framtíð KVK,“ er haft eftir Frey í tilkynningunni.

Mark Hughes efstur hjá veðbönkum

Samkvæmt frétt Wales Online er Freyr núna í fjórða sæti yfir þá þjálfara sem þykja líklegastir til að taka við Cardiff. Gamla brýnið Mark Hughes er allt í einu kominn þar í efsta sæti en hann stýrði síðast Bradford City í ensku D-deildinni, eftir að hafa áður stýrt Manchester City, Fulham, Stoke og Southampton. James Rowberry og Nathan Jones eru einnig taldir líklegri en Freyr til að taka við liðinu.

Cardiff er á botni ensku B-deildarinnar en Freyr þekkir það vel að taka við liði í erfiðri stöðu og bæta gengi þess. Hann bjargaði Kortrijk frá falli með ævintýralegum hætti á síðustu leiktíð, eftir að hafa komið Lyngby upp í dönsku úrvalsdeildina og haldið því þar.

Dreymir um að starfa í Englandi

Cardiff er eins konar systurfélag Kortrijk, en bæði félög eru í eigu malasíska Íslandsvinarins Vincent Tan, og greindi Freyr frá því við Fótbolta.net í vor að hann hefði mikinn áhuga á því að þjálfa Cardiff. Draumur hans væri að starfa í Englandi.

„Vincent Tan og Ken Choo sjá um bæði félögin. Það er ekkert leyndarmál, og þegar ég talaði við Kortrijk á sínum tíma þá átti ég líka samtal við þá sem stjórna Cardiff um að ég ætla mér að þjálfa á Englandi. Ég ætla vera stjóri í Championship eða Premier League. Það eru stórir draumar og ég geri mér grein fyrir því. Það væri frábært ef að það væri Cardiff, ég myndi gjarnan vilja þjálfa Cardiff á einhverjum tímapunkti,“ sagði Freyr við Fótbolta.net.

Omer Riza, sem hefur verið þjálfari hjá Cardiff, mun stýra liðinu þar til að arftaki Buluts finnst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×