Öllum sundlaugum í Reykjavík lokað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. október 2024 15:48 Tómlegt verður í Laugardalslaug á meðan bilunin er í gangi. vísir/vilhelm Öllum sundlaugum Reykjavíkur hefur verið lokað vegna bilunar í Nesjavallavirkjun Orku náttúrunnar í morgun. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á nýjan leik. Þá hafa gervigrasvellir borgarinnar sem hitaðir eru með heitu vatni verið settir á lægstu stillingu.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu Laugardalslaugar. Þar segir: „Lokað er í öllum sundlaugum Reykjavíkur vegna bilunar á Nesjavöllum. Við látum vita þegar skýrist betur hvenær hægt er að opna á ný.“ Fólk er í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur hvatt til að fara sparlega með heita vatnið vegna bilunar. „Bilun varð í Nesjavallavirkjun Orku náttúrunnar í morgun sem orsakaði skerta framleiðslu á heitu vatni. Hluti þeirra véla sem sjá um framleiðsluna eru komnar aftur af stað en virkjunin er ekki á fullum afköstum. Vegna þessa biðja Veitur sem dreifa vatninu til íbúa á höfuðborgarsvæðinu, fólk um að fara sparlega með heita vatnið á meðan á viðgerð stendur,“ segir í tilkynningunni. „Það sem við eigum við þegar við hvetjum fólk til þess að fara sparlega með vatnið er ekki að fólk sleppi því að fara í sturtu. Fyrst og fremst skiptir máli að fólk reyni að halda varmanum inni í húsum sínum og sé ekki með glugga opna að óþörfu eða láti renna í pottinn á meðan á viðgerðinni stendur,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna. Þá hafi Veitur einnig haft samband við sína stærstu viðskiptavini sem eru á skerðanlegum töxtum og biðlað til þeirra að lágmarka heitavatnsnotkun eins og unnt er. Þetta séu þeir viðskiptavinir sem kaupi heitt vatn á afslætti gegn því að þegar ástand líkt og hér um ræðir skapist, hafi Veitur heimild til skerðinga. „Við erum að reka tvær hitaveitur á höfuðborgarsvæðinu og það er hlutverk okkar að gera allt sem við getum til þess að halda þeim í jafnvægi. Að biðla til fólks um að minnka notkun og halda hitanum inni er liður í því að tryggja þetta jafnvægi.“ Frekari upplýsingar verði gefnar út þegar þær liggja fyrir. Uppfært klukkan 16:00 Tilkynning frá Reykjavíkurborg: Vegna bilunar í Nesjavallavirkjun Orku Náttúrunnar er nú skert flæði á heitu vatni til höfuðborgarsvæðisins. Vegna þessa hefur Reykjavíkurborg lokað öllum sínum átta sundlaugum og óljóst er hvenær hægt verður að opna þær aftur. Hluti þeirra véla sem sjá um framleiðsluna í Nesjavallavirkjun eru komnar aftur af stað en virkjunin er ekki á fullum afköstum. Vegna þessa biðja Veitur sem dreifa vatninu til íbúa á höfuðborgarsvæðinu, fólk um að fara sparlega með heita vatnið á meðan á viðgerð stendur. Veitur höfðu samband við sína stærstu viðskiptavini með ósk um að heitavatnsnotkun yrði lágmörkuð eins mikið og hægt er til setja heimili og viðkvæma starfsemi í forgang. Reykjavíkurborg hefur orðið við þeirri beiðni og hefur sundlaugum því verið lokað og gervigrasvellir stilltir á lægstu stillingu.
Sundlaugar Reykjavík Vatn Orkumál Tengdar fréttir Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Útleysing varð á öllum vélum í Nesjavallavirkjun í morgun. Orsök bilunarinnar er óljós en unnið er að greiningu. 9. október 2024 12:44 Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Heitavatnslaust verður í stórum hluta Vesturbæjar Reykjavíkur sunnan Hringbrautar milli klukkan 08 og 16 í dag. 9. október 2024 07:29 Mest lesið Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Öllum sundlaugum í Reykjavík lokað Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Innlent Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Fleiri fréttir Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum í Reykjavík lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu „Við sjáum afleiðingar þess að vinna ekki fyrir ofan fossinn“ Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Stjórnarsamstarfi efnislega lokið? Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Ökumaðurinn liðlega tvítugur Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Kom skemmtilega á óvart að hitta Margréti Danadrottningu Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Mikill viðbúnaður vegna hnífaárásar í nótt Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Sjá meira
Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Útleysing varð á öllum vélum í Nesjavallavirkjun í morgun. Orsök bilunarinnar er óljós en unnið er að greiningu. 9. október 2024 12:44
Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Heitavatnslaust verður í stórum hluta Vesturbæjar Reykjavíkur sunnan Hringbrautar milli klukkan 08 og 16 í dag. 9. október 2024 07:29