Elfar Árni afgreiddi Vestra Einar Kárason skrifar 19. október 2024 15:55 Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði tvö mörk í dag. Vísir/Hulda Margrét Elfar Árni Aðalsteinsson var maður dagsins þegar KA vann 2-1 sigur á Vestra í neðri hluta úrslitakeppninnar en Vestramenn hefðu nánast bjargað sér frá falli með sigri. Bæði mörk Elfars komu í fyrri hálfleik þar af það fyrra eftir aðeins 22 sekúndur. Vestramenn minnkuðu muninn í blálokin en það var ekki nóg. Með þessum sigri ná KA-menn fjögurra stiga forskoti í neðri hlutanum en Fram á leik inni. Vestramenn eru aftur á móti þremur stigum á undan HK en Kópavogsliðið á leik inni. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir. Besta deild karla KA Vestri
Leik lokið: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Leik lokið: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn