Upp­gjörið : FH - Valur | Gylfi klúðraði víti og FH stal stigi í uppbótartíma

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson klikkaði á vítaspyrnu í blálokin. 
Gylfi Þór Sigurðsson klikkaði á vítaspyrnu í blálokin.  vísir/Hulda Margrét

Valur gerði 1-1 jafntefli við FH í Kaplakrika. Allt stefndi í þægilegan sigur Vals þar til í uppbótartíma, sem var í meira lagi fjörugur. FH jafnaði þökk sé sjálfsmarki, Gylfi Þór Sigurðsson fékk síðan tækifæri til að tryggja sigur en klikkaði úr vítaspyrnu.

Boðið var upp á mikið fjör í Kaplakrika. FH ógnaði meira fyrstu mínúturnar; Logi Hrafn fékk úrvalsfæri en var ragur við að skjóta sjálfur, Sigurður Bjartur potaði tánni í boltann af stuttu færi en Ögmundur varði með fætinum, Arnór Borg kom boltanum í netið en var augljóslega rangstæður og flaggið fór réttilega á loft.

Eftir að Valur breytti leikplaninu aðeins fóru þeir að skapa sér færi, hættu að gefa langa bolta upp í horn, sem var ekki hægt með vindinn í bakið, og spiluðu meira í gegnum miðjuna.

Valur komst nálægt því að taka forystuna eftir um hálftíma leik en Sindri Kristinn í marki FH vildi ekki að gefa þjálfaranum ástæðu til að setja sig aftur á bekkinn og varði stórkostlega í þrígang.

Hann gerði hins vegar ekki eins vel fimmtán mínútum síðar þegar Valur tók forystuna. Gylfi Þór sveiflaði boltanum úr hornspyrnu og beint á markið. Sindri var í vandræðum, varði skotið en sló boltann út í teiginn, beint fyrir fætur Bjarna Mark sem skoraði.

Leikurinn róaðist til muna í seinni hálfleik, allt þar til í uppbótartíma. Svo virtist sem Valur myndi bara sigla þægilegum 1-0 sigri heim en Böðvar Böðvarsson kveikti í mönnum með rosalegri rennitæklingu.

Allt í einu kom mikill eldmóður í FH-liðið. Hornspyrna vannst, boltinn gefinn fyrir og Orri Sigurður varð fyrir því óláni að stanga hann í eigið net.

Valsmenn brunuðu þá í sókn og unnu strax vítaspyrnu, sem má deila um hvort hafi verið rétt dæmd. Gylfi Þór Sigurðsson steig á punktinn, skaut á mitt markið og Sindri Kristinn varði með fætinum.

Ótrúlegar lokamínútur og mikil læti en 1-1 jafntefli niðurstaðan.

Atvik leiksins

Böðvar Böðvarsson átti svakalega rennitæklingu í uppbótartíma. Vann boltann en fór í gegnum manninn til að gera það. Allt í einu var þvílíkur hiti í leik sem virtist steindauður, Valsmenn vildu sjá beint rautt og létu dómarann heyra það. Atvikið gerðist fyrir framan varamannabekkina þannig að þjálfarar og leikmenn blönduðust í málið.

FH vaknaði til lífsins og skoraði jöfnunarmarkið skömmu síðar.

Stemning og umgjörð

Fámennt í stúkunni og lítil læti sem fylgdu. Vallarstjórinn reyndi að keyra stuðið og stemninguna í gang með smá tónlist í upphafi, slökkti ekki á græjunum fyrr en rúm mínúta var liðin af leiknum. Don‘t stop believen‘ með Journey, geggjað lag og vel viðeigandi.

Dómarar [6]

Sigurður Hjörtur Þrastarson með flautuna. Patrik Freyr Guðmundsson og Antoníus Bjarki Halldórsson til aðstoðar. Arnar Ingi Ingvarsson sá fjórði.

Spurningamerki við vítaspyrnuna sem Valur fékk undir lokin. Leystu vel úr öllu öðru.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira