Sport

Bein út­sending: Fjögur fræknu að hlaupa rúma 350 kíló­metra

Garpur I. Elísabetarson skrifar
Hér eru þau fimmtán sem tóku þátt fyrir hönd Íslands í heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupum.
Hér eru þau fimmtán sem tóku þátt fyrir hönd Íslands í heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupum. Vísir/Gummi St.

Heimsmeistaramót landsliða í bakgarðshlaupum hófst í hádeginu á laugardag. Ísland sendir öfluga keppendur til leiks. Fjórir af fimmtán eru enn eftir í hlaupinu. Fylgst er með í beinni útsendingu og vaktinni að neðan.

Enn að hlaupa (4 af 15)

 Elísa Kristinsdóttir - Andri Guðmundsson - Þorleifur Þorleifsson - Marlena Radziszewska.

Hætti eftir 50 hringi

Mari Järsk

Hætti eftir 40 hringi

Guðjón Ingi Sigurðsson

Hætti eftir 38 hringi

Kristinn Gunnar Kristinsson

Hætti eftir 37 hringi

Sif Sumarliðadóttir

Hætti eftir 33. hring (221,1 km)

Friðrik Benediktsson

Hætti eftir 30. hring (201 km)

Hildur Guðný Káradóttir

Hættu eftir 27. hring (180,9 km)

Margrét Salóme L. Þorsteinsdóttir

Jón Trausti Guðmundsson

Hætti eftir 25. hring (167,5 km)

Margrét Th. Jónsdóttir

Hætti eftir 24. hring (160,8 km)

Flóki Halldórsson

Hætti eftir 21. hring (140,7 km)

Rakel María Hjaltadóttir


Rúmlega sextíu lönd keppa að þessu sinni. Hvert lið hleypur í sínu landi og keppnin hefst alls staðar á sama tíma.  Hlaupið verður í Elliðaárdalnum. Hlaupararnir fá eina klukkustund til að hlaupa 6,7 kílómetra langan hring og er hlaupið þar til einungis einn var eftir. Sá sem vinnur íslenska hlutann öðlast þátttökurétt á HM einstaklinga í bakgarðshlaupum.

Íslenska liðið er skipað fimmtán keppendum sem tryggðu sér sæti í því með árangri sínum í bakgarðskeppnum frá ágúst 2022 og ágúst 2024.

Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér fyrir neðan þar sem Garpur I. Elísabetarson er að vanda á vaktinni. 

Ef Vaktin birtist ekki hér að neðan er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×