Innlent

Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“

Árni Sæberg skrifar
Brynjar Níelsson er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins eftir að hafa verið í þriðja sæti á lista í Reykjavíkurkjördæmi norður í síðustu kosningum.
Brynjar Níelsson er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins eftir að hafa verið í þriðja sæti á lista í Reykjavíkurkjördæmi norður í síðustu kosningum. Vísir/Vilhelm

Ríkisútvarpið fullyrðir að Brynjar Níelsson varaþingmaður fái þriðja sætið á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður. „Þeir vita meira en ég,“ segir Brynjar í samtali við Vísi.

Í frétt Ríkisútvarpsins segir að listar flokksins í Reykjavík verði kynntir á fimmtudag og samkvæmt upplýsingum fréttastofu sé „næstum frágengið“ að Brynjar verði í þriðja sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Í mat með Jóni

Blaðamaður sló á þráðinn til Brynjars, sem sagðist vera á matsölustað með félaga sínum Jóni Gunnarssyni, „sem var kosinn út í gær.“ 

Brynjar virtist alveg koma af fjöllum þegar frétt Ríkisútvarpsins var borin undir hann. „Ég veit ekki hvað uppstillingarnefndin er að gera, það hefur ekki verið talað við mig allavega. Það hefur ekki verið sagt mér, eins og maðurinn sagði.“

Dugði ekki til síðast

Brynjar hefur lýst því yfir að hann muni íhuga það alvarlega að taka sæti á lista Sjálfstæðismanna, yrði óskað eftir því.

„Það verður bara að koma í ljós. Þetta er ekki alveg í mínum höndum og ég veit ekki hvort menn vilji fá mig. Það verður bara að koma í ljós.“

Ljóst er að fái Brynjar þriðja sætið á hann harða kosningabaráttu fyrir höndum en hann skipaði sama sæti í kosningunum árið 2021. Það dugði honum nokkuð óvænt ekki til að komast inn á Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×