Innlent

Til­kynnt um mann að elta börn í Hafnar­firði

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Maðurinn fannst ekki þrátt fyrir leit.
Maðurinn fannst ekki þrátt fyrir leit. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór á vettvang í gærkvöldi eða nótt þegar tilkynning barst um að maður hefði verið að elta börn í Hafnarfirði. Fannst hann ekki þrátt fyrir leit.

Önnur tilkynning barst um eld í bifreið í Hafnarfirði og þá var tilkynnt að ráðist hefði verið á ungling í póstnúmerinu 111 og ölvaðan ökumann í póstnúmerinu 108.

Sá var handtekinn.

Nokkur umferðaróhöpp áttu sér stað á vaktinni en engin slys urðu á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×