Viðskipti innlent

Við­ræðum slitið um sam­runa Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa, sagði að ýmis mál og atvik hefðu spilað inn í ákvörðun Samkaupa um að slíta viðræðunum.
Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa, sagði að ýmis mál og atvik hefðu spilað inn í ákvörðun Samkaupa um að slíta viðræðunum. aðsend

Viðræðum Samkaupa og Skeljar fasteignarfélags um samruna Samkaupa og dótturfélaga Skeljar, Heimkaupa og Orkunnar, hefur verið slitið. Áhyggjur af yfirstandandi rannsókn ESA á Skel hafi haft áhrif á slitin.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkaupum.

Þar segir að aðilar hafi framkvæmt áreiðanleikakönnun á samrunafélögunum með aðstoð sérfræðiráðgjafar og í samræmi við ákvæði samkeppnislaga. Stjórn og starfsfólk Samkaupa hafi tekið þátt viðræðunum og lagt í þær bæði vinnu og fjármagn.

„Á síðustu vikum hafa hins vegar komið fram upplýsingar og upp komið atvik sem hafa orðið til þess að upphaflegar forsendur samruna voru teknar til endurskoðunar. Niðurstaða þeirra skoðunar var að skynsamlegast væri fyrir fyrirtækið og hluthafa að viðræðum væri hætt og var það samþykkt á stjórnarfundi Samkaupa í dag,“ segir einnig í tilkynningunni.

Áhyggjur af yfirstandandi rannsókn ESA

Fréttastofa hafði samband við Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóra Samkaupa, til að spyrja út í viðræðuslitin og þessi mál sem ýjað er að í tilkynningunni.

Hvaða atvik og upplýsingar er verið að vísa í þarna?

„Það er í raun og veru kannski erfitt að tjá sig um það í smáatriðum af því viðsemjandinn er skráður á markað. Það hefur opinberlega komið í ljós eitt mál sem hefur valdið okkur áhyggjum, yfirstandandi samkeppnisrannsókn sem ESA er í núna, og fleiri mál sem er erfitt að tjá sig um sem ollu því að menn mátu að það væri betra að slíta þessu en halda áfram,“ sagði Gunnar Egill í samtali við fréttastofu.

Gunnar segir að búið sé að vinna að viðræðunum síðan í janúar og því mikill tími farið í þær.

„Fyrir mitt leyti eru þetta vonbrigði að menn hafi ekki náð að klára þennan samruna en svosem áfram gakk okkar megin,“ sagði hann.

Þetta hefði orðið ansi stór samruni.

„Ef af hefði orðið hefðu Samkaup verið með 75 milljarða veltu og komin með starfsemi á dagvöru-, orku-, apóteka- og veitingamarkaði. Og það er vegferð sem við höfum verið í og þessi félög passa öll vel saman en að þessu sinni náði ekki að ljúka því farsællega,“ sagði Gunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×