„Mér finnst þetta móðgun við alla,“ sagði Harris áður en hún hélt áfram kosningabaráttu sinni í Arizona og Nevada í gær. Ríkin eru bæði svokölluð sveifluríki [e. swing state] þar sem hvorugur flokkur getur treyst á atkvæði.

Ætlar að vernda konur sama hvað
Í forsetatíð sinni skipaði Trump þrjá dómara við hæstarétt Bandaríkjanna sem mynda þann íhaldssama meirihluta sem sneri við ákvörðunum dómstólsins sem snúa að þungunarrofi. Trump hefur á kosningafundum undanfarið montað sig af þessum ákvörðunum og lýst því yfir að hann muni „vernda konur“ og tryggja að þær hugsi ekki um þungunarrof.
Á kosningafundi á miðvikudag lýsti Trump því yfir að aðstoðarmenn hans hefðu hvatt hann til að hætta að segja þetta því það væri ekki „viðeigandi“ og svo sagt „En ég ætla að gera það sama hvort konum líkar það betur eða verr, ég ætla að vernda þær.“
Harris segir ummælin ein af mörgum frá Trump sem valdi henni áhyggjum. „Þetta er bara það nýjasta í langri seríu uppljóstrana frá fyrrverandi forsetanum sem lýsa því hvað honum finnst um konur og þeirra umboð,“ er haft eftir Harris í frétt Guardian um málið.

Forsetakosningarnar fara fram næsta þriðjudag. Bæði Harris og Trump eru á ferð og flugi um landið og voru bæði í gær í Nevada og Arizona til að reyna að tryggja sér atkvæði fólks sem er af rómönskum uppruna [e. Latino].
Í frétt Reuters segir að Harris hafi varað kjósendur við því að Trump muni minnka fjármagn í ýmis heilbrigðismál og minnti kjósendur á að hann hafi reynt að fella úr gildi Obamacare sem er löggjöf sem snýr að því að gera heilbrigðisþjónustu viðráðanlega í verði.
Trump sagðist aldrei hafa reynt að fella löggjöfina úr gildi og að hann hafi aldrei hugsað um það. Trump fór frá Las Vegas til Arizona og með honum var fyrrverandi þáttastjórnandi Fox News Tucker Carlson.

Á sama tíma var poppdívan Jennifer Lopes með Kamölu Harris. Hún sagði í ræðu að Harris myndi berjast fyrir frelsi innflytjenda og fjölskyldna þeirra. Hún fordæmdi kosningafund Trump í Madison Square Garden þar sem stuðningsmenn hans kölluðu Puertó Ríkó „fljótandi eyju af rusli“.
Sjá einnig: Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York
„Við ættum að vera í uppnámi. Við ættum að vera hrædd og brjáluð. Okkar sársauki skiptir máli… atkvæði þitt skiptir máli,“ sagði Lopez og lauk svo á orðunum „Let‘s get loud“ eða „Höfum hátt“ sem er einnig titill eins vinsælasta lags hennar sem kom út 1999.