Viðskipti innlent

Bein út­sending: Grænt Ís­land til fram­tíðar – Hver er leiðin á­fram?

Atli Ísleifsson skrifar
Fundurinn hefst klukkan 9:00.
Fundurinn hefst klukkan 9:00. Vísir/Vilhelm

Samorka stendur fyrir kosningafundi í Kaldalóni í Hörpu í dag undir yfirskriftinni Grænt Ísland til framtíðar: Hver er leiðin áfram? Fundurinn hefst klukkan 9 og verður í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Á vef Samorku segir að orkumálin séu mikilvægur þáttur fyrir efnahag landsins og lífsgæði íbúanna. Fulltrúar tíu flokka sem eru í framboði til Alþingis munu ræðu um stefnu þeirra í málaflokknum, það er um orkuöflun, rammaáætlun, eflingu flutnings- og dreifikerfis, vindorkunýtingu og fleira.

Fundurinn stendur frá klukkan 9 til 10.30.

Á fundinum verða eftirtaldir frambjóðendur:

  • Guðmundur Hrafn Ásgrímsson - Sósíalistaflokkurinn
  • Guðlaugur Þór Þórðarson - Sjálfstæðisflokkurinn
  • Ragnar Þór Ingólfsson - Flokkur fólksins
  • Bergþór Ólason - Miðflokkurinn
  • Jóhann Páll Jóhansson - Samfylkingin
  • Lenya Rún Taha Karim - Píratar
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson - Vinstrihreyfingin - grænt framboð
  • Hanna Katrín Friðriksson - Viðreisn
  • Arnar Þór Jónsson - Lýðræðisflokkurinn
  • Halla Hrund Logadóttir - Framsóknarflokkurinn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×