Fótbolti

Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum

Siggeir Ævarsson skrifar
Mark Flekken hefur þurft að hirða boltann úr eigin neti 22 sinnum það sem af er hausti
Mark Flekken hefur þurft að hirða boltann úr eigin neti 22 sinnum það sem af er hausti Vísir/Getty

Leikmenn Brentford náðu að halda marki sínu hreinu í dag þegar liðið gerði 0-0 jafntefli við Everton á útivelli en Brentford lék manni færri frá 41. mínútu þegar fyrirliðinn Christian Nørgaard fékk að líta rauða spjaldið.

Þrátt fyrir liðsmuninn tókst Everton ekki að skora mark og liðsmenn Brentford gátu fagnað tveimur áföngum í leikslok þar sem þeir náðu að halda hreinu í fyrsta skipti á leiktíðinni og jafnframt var þetta fyrsta stig liðsins á útivelli.

Fyrir leikinn í dag hafði Brentford fengið á sig 22 mörk í ellefu leikjum, eða tvö mörk að meðaltali í leik. Þá hefur liðið einnig skorað 22 mörk og er því með hlutlausta markatölu, líkt og Aston Villa, Fulham og Manchester United.

Þess má til gamans geta að Manchester United hefur aðeins skorað tólf mörk á tímabilinu og þar af leiðandi fengið annað eins á sig. Aðeins þrjú lið í deildinni hafa skorað færri mörk en United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×