Íslenski boltinn

Hræringar í Bestu: Daníel Haf­steins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garða­bæ

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Daníel Hafsteinsson í leik með KA í sumar.
Daníel Hafsteinsson í leik með KA í sumar. Vísir/Diego

Það er nóg um að vera hjá liðum í Bestu deild karla í fótbolta þó deildin sé farin í vetrarfrí. Liðin eru í óðaönn að undirbúa sig fyrir næsta ár og því er af nægu að taka þessa dagana.

Daníel Hafsteinsson rifti samningi sínum við bikarmeistara KA að tímabilinu loknu. Miðjumaðurinn átti mjög gott tímabil á miðjunni hjá Akureyringum og er eftirsóttur. Nú hefur Fótbolti.net greint frá því að Víkingar séu með Daníel í sigtinu.

Hinn 25 ára gamli Daníel er uppalinn hjá KA og hefur spilað einn A-landsleik á ferlinum. Hann var á sínum tíma seldur til Helsingborg í Svíþjóð og lék sumarið 2020 með FH á láni frá sænska félaginu.

Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason sé að semja við Stjörnuna samkvæmt heimildum Vísis. Fótbolti.net greindi hins vegar fyrst frá. Andri Rúnar hjálpaði Vestra að halda sæti sínu í efstu deild í sumar og var virkilega öflugur á lokasprettinum. Hann ákvað hins vegar að vera ekki áfram á Vestfjörðum fjölskyldunnar vegna og er nú að semja í Garðabænum.

Andri Rúnar er alinn upp fyrir vestan en hefur einnig spilað með Víking, Grindavík, Val og ÍBV hér á landi ásamt því að hann lék með Kaiserslautern í Þýskalandi, Helsingborg í Svíþjóð og Esbjerg í Danmörku.

Andri Rúnar fagnar þrennu gegn Fram í sumar.Vísir/Viktor Freyr

KR-ingar hafa verið duglegir að semja við leikmenn en að sama skapi hafa margir horfið á braut. Nú hefur verið greint frá því að hinn 19 ára gamli Lúkas Magni Magnason hafi rift samningi sínum við félagið. Það staðfesti Óskar Hrafn Þorvaldsson í viðtali við Fótbolti.net.

Lúkas Magni gekk í raðir KR fyrir tímabilið 2023. Samningur hans í Vesturbænum var til loka tímabilsins 2027 en fyrr á þessu ári hélt hann til Bandaríkjanna til að spila með Clemson-háskólanum á skólastyrk.

Åge Vuk Oskar Dimitrijevic er samningslaus um þessar mundir eftir að samningur hans við FH rann út. Hann er orðaður við uppeldisfélagið Leikni Reykjavík en vill vera áfram í efstu deild. Jafnframt virðist landsbyggðin horfa til Vuk en Fótbolti.net greinir frá því að Vestri, KA og ÍBV séu öll með augastað á þessum skemmtilega vængmanni.


Tengdar fréttir

Tólf leikmenn komnir til KR

KR kynnti þrjá nýja leikmenn karlaliðs félagsins í fótbolta til leiks í gær. Alls hefur KR fengið tólf nýja leikmenn til sín fyrir næsta tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×