Innlent

Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins segir taktinn í viðræðum góðan.
Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins segir taktinn í viðræðum góðan. Vísir/Arnar

Samninganefndir lækna og ríkis komu saman í Karphúsinu klukkan níu til að leggja lokahönd á kjarasamninga. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands segir líklegt að fundað verði í allan dag.

„Það er mjög góður gangur og það er vinna hér úti um allt og vaxandi bjartsýni að við séum að ná að hnýta þessa lausu enda sem eru svolítið viðamiklir. Þetta eru flóknar breytingar og fjölbreyttur hópur sem er undir en vinnan er í fullum gangi,“ segir Steinunn. 

Vinnan við samningsborðið hefur fyrst og fremst hafa snúist um betri vinnutíma og styttingu vinnuvikunnar fyrir lækna.

Hefurðu einhverja hugmynd um hvort ykkur takist að undirrita jafnvel í dag?

„Bjartsýnustu menn hafa verið með spá um að það gæti gerst. Ég er ekki alveg komin á þann stað að vera tilbúin að trúa því. En ég held að við séum á góðri leið með að landa samningi sama hvort það sé í dag eða á morgun.“


Tengdar fréttir

„Það má Guð vita“

Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara.

Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst

Fyrstu lotu verkfalls lækna sem átti að hefjast nú á miðnætti hefur verið aflýst. Þetta kemur fram í tölvupósti til félagsmanna í Læknafélagi Íslands. Ríkissáttasemjari segir að verið sé að útfæra tæknileg smáatriði og það muni vonandi takast á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×