Innlent

Ekki á­kærður fyrir mann­dráp í Kiðja­bergi

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Tilkynnt var um andlát manns á fertugsaldri sumarhúsi í Kiðjabergi í apríl á þessu ári.
Tilkynnt var um andlát manns á fertugsaldri sumarhúsi í Kiðjabergi í apríl á þessu ári. Vísir/Vilhelm

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í tengslum við andlát manns í sumarhúsi við Kiðjaberg í Grímsnesi í apríl á þessu ári. Athygli vekur að maðurinn er ekki ákærður fyrir manndráp.

Ríkisútvarpið greinir frá, en í ákæru héraðssaksóknara er manninum gefið að sök að hafa veist að öðrum karlmanni þannig að hann hlaut bana af, en atlagan hafi beinst að höfði, hálsi og líkama hins látna. Meðal annars hafi árásarmaðurinn slegið hann tvisvar í andlitið með þeim afleiðingum að hann fékk í gólfið. 

Hinn látni hafi hlotið af fjölþætta áverka á gagnauga, hvirfil- og hnakkasvæði, hálsi og andliti. Þá hafi hann hlotið mikla og útbreidda áverka á heilavef, litla heila og heilastofni. Maðurinn hafi látist af völdum heilaáverka.

Fjórir voru handteknir í upphafi málsins og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Hinn ákærði er sá eini úr þeim hópi sem enn hefur réttarstöðu sakbornings. Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Suðurlands frá því í maí hefur hann viðurkennt að hafa ráðist á hinn látna í aðdraganda andlátsins, en neitar þrátt fyrir það að hafa valdið þeim áverkum sem fundust á líki hins látna.

Mennirnir fimm eru allir frá Litháen og voru í sumarhúsabyggðinni á vegum verktakafyrirtækis að byggja annað sumarhús í grenndinni þegar atvikið varð. 


Tengdar fréttir

Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara

Lögreglan á Suðurlandi skilaði rannsókn á andláti manns í sumarbústað í Kiðjabergi í vor á borð Héraðsaksóknara á föstudag. Einn er með réttarstöðu sakbornings í málinu grunaður um að hafa orðið manninum að bana.

Hlutur sakborninga mismikill

Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms yfir litháenskum karlmanni sem er grunaður um að hafa valdið dauða samlanda síns í Kiðjabergi í apríl. Maðurinn var því ekki úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann er þó enn í haldi en hann afplánar nú eldri fangelsisdómi.

Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga

Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Suðurland um að úrskurða tvo karlmenn í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti sem varð í Kiðjabergi um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×