Helgi segir mennina ýmist ekkert eða lítið hafa unnið hjá Sling Árni Sæberg skrifar 12. desember 2024 17:16 Helgi Hermannsson var framkvæmdastjóri Sling. Vísir/Vilhelm Helgi Hermannsson, áður stærsti hluthafi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sling, hefur verið dæmdur til að greiða fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins 67 milljónir króna í Landsrétti. Hann er ósáttur við dóminn og segir mennina ekki hafa unnið hjá Sling eða aðeins um skamman tíma.
Greint var frá því í dag að Landsréttur hefði staðfest dóma héraðsdóms um að Helgi þyrfti að greiða mönnunum fjórum alls 67 milljónir króna vegna samninga sem gerðir voru skömmu áður en Sling var selt fyrir níu milljarða króna. Í yfirlýsingu Helga vegna dómsins segir að hann sé ekki sammála niðurstöðu dómsins, sem taki ekki til lykilstaðreynda málsins. „Sem snýst um meinta kauprétti manna sem aldrei unnu hjá fyrirtækinu eða stoppuðu mjög stutt við í árdögum þess.“ Tveir hafi aldrei unnið fyrir Sling Helgi segir tvo mannanna fjögurra aldrei hafa unnið fyrir Sling. Það eru þeir Gísli Guðmundsson og Jose Eduardo Valenzuela Martinez. „Hinir tveir hættu fyrir langa löngu. Aron Ingi Óskarsson vann í 4 mánuði fyrir Sling sumarið 2016. Bjarki Fannar Atlason vann fyrir auglýsingastofu 2015 sem heitir Döðlur sem vann fyrir Sling. Bjarki hætti öllum afskiptum af Sling 2017 þegar hann stofnaði eigið fyrirtæki sem heitir 50Skills.“ Vísir ræddi við Bjarka Fannar skömmu eftir að dómur féll í málinu í héraði í fyrra. Bjarki eyddi að sögn rúmum sex árum í hönnunina á Sling. Starfsmenn hafi fengið að njóta góðs af sölunni Helgi segir að við sölu á Sling sumarið 2022 hafi margt af kjarnastarfsfólki félagsins unnið dag og nótt fyrir fyrirtækið í mörg ár. „Þetta frábæra starfsfólk, 34 aðtölu, stóð með fyrirtækinu í gegnum mikla erfiðleika árum saman. Allt þetta góða fólk voru hluthafar í fyrirtækinu við sölu og nutu þess fjárhagslega.“ Spyr hvers vegna hann hafi einn verið gerður ábyrgur Loks varpar Helgi fram spurningu til dómsins: „Af hverju er ekki öllum hluthöfum Sling þá gert að greiða hlutfallslega eftir eign sinni í félaginu heldur aðeins einum hluthafa af mjög mörgum?“ Svar við þeirri spurningu virðist liggja í augum uppi við lestur dóma Landsréttar. Í öllum fjórum dómunum segir að málin snúi að gildi samninga sem Helgi gerði einn við mennina fjóra. Álitamálin hafi verið hvort samningar um uppgjör sem Helgi og mennirnir gerðu sín á milli og átti að leiða til lykta deilur um framkvæmd tiltekins kaupréttarsamnings væru skuldbindandi fyrir Helga og þar með hvort á honum hvíldi greiðsluskylda á grundvelli þeirra. Sagði Atla hafa þvingað hann til undirskriftar Helgi hafi einkum byggt á því að vilji hans hefði ekki staðið til að undirgangast þá persónulegu greiðsluskuldbindingu sem samningarnir báru með sér heldur hefði fyrrum samstarfsfélagi hans og meðeigandi að félaginu, Atli Þorbjörnsson, þvingað hann til þess með því að neita ella að samþykkja sölu á hlutum í félaginu. Samningarnir hefðu því ekki falið í sér loforð af hans hálfu. Þá hafi hann einnig byggt á því að samningarnir væru ógildir og óskuldbindandi fyrir hann og að í öllu falli bæri að víkja þeim til hliðar. Landsréttur taldi að hvað sem liði vitneskju mannanna um óánægju Helga með samningana yrði á engan hátt dregin sú ályktun af henni eða öðru því sem fram hefði komið í málinu að þeir hefðu vitað eða mátt vita um einhver þau atvik eða aðstæður sem leitt gætu til þess að þeim yrði gert að þola ógildingu á samkomulaginu á grundvelli nánar tiltekinna ákvæða laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga.
Kaup og sala fyrirtækja Nýsköpun Dómsmál Tækni Mest lesið Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Viðskipti innlent Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Sjá meira