Kortrijk sendi út tilkynningu þess efnis í gær að félagið hefði samið við Frey um starfslok, og að það hefði verið „erfið ákvörðun fyrir félagið“.
Var Frey þakkað fyrir síðasta árið og að hafa bjargað Kortrijk frá falli á síðustu leiktíð, með ævintýralegum hætti.
Hann bættist á langan lista þjálfara sem Kortrijk hefur rekið á síðustu árum en belgískir miðlar hafa kallað félagið „kirkjugarð þjálfaranna“ vegna þessara tíðu þjálfaraskipta, en félagið er í eigu Íslandsvinarins og auðkýfingsins Vincent Tan.
Ljóst er að Kortrijk hefur verið búið að finna mann í stað Freys því strax í morgun, fimmtán tímum eftir tilkynninguna um að Freyr væri hættur, sagði félagið frá því að Yves Vanderhaeghe hefði verið ráðinn í hans stað.
Vanderhaeghe snýr þar með aftur til Kortrijk en hann hóf þjálfaraferil sinn hjá félaginu sem aðstoðarþjálfari 2008-14 og svo sem aðalþjálfari til 2015, og stýrði liðinu svo einnig á árunum 2018-21. Hann var því afar langlífur í starfi á mælikvarða félagsins, sem skipt hefur sautján sinnum um stjóra frá árinu 2014, og þá er ekki talið með þegar fyllt hefur verið í skarðið tímabundið.
Kortrijk er nú í 14. sæti af 16 liðum belgísku deildarinnar, en fjögur neðstu liðin spila í sérstökum fallhluta deildarinnar í vor. Liðið hefur tapað tveimur síðustu leikjum sínum og alls ellefu af átján leikjum á tímabilinu, en síðasti sigur liðsins var 3-1 sigur á Mechelen í lok nóvember.
Fyrsti leikur Kortrijk undir stjórn Vanderhaeghe verður á laugardaginn gegn Beerschot á útivelli. Samningur hans við félagið gildir til loka leiktíðar, með möguleika á framlengingu.