Viðskipti innlent

Discover hefur flug milli München og Ís­lands

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frúarkirkjan og ráðhústorgið í München.
Frúarkirkjan og ráðhústorgið í München. Getty Images

Þýska flugfélagið Discover Airlines, dótturfélag Lufthansa, hefur ákveðið að fljúga milli München og Keflavíkurflugvallar allt árið um kring. Þetta var tilkynnt í dag en áður hafði félagið boðað flug til og frá KEF yfir sumartímann.

Fyrsta flug félagsins verður 3. apríl 2025 og verður flogið þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann og tvisvar í viku út vetrartímabilið. Flogið verður á Airbus A320 vélum flugfélagsins.

Lufthansa flug áður á milli München og Keflavíkurflugvallar, en Discover Airlines, tekur yfir flugleiðina. Discover býður sínum farþegum upp á að hægt verði að tengja áfram til enn fleiri áfangastaða þeirra og Lufthansa í gegnum München.

„Það er okkur sönn ánægja að bjóða flugfélagið Discover Airlines velkomið í flugvallarsamfélagið á Keflavíkurflugvelli,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar í tilkynningu.

„Þessar fréttir koma í kjölfar ákvörðunar easyJet að bæta við áfangastöðum næsta sumar og pólska flugfélagsins LOT að hefja í fyrsta sinn flug milli Varsjár og KEF. Þetta eru ánægjulegar fréttir og styrkja enn frekar áfangastaðinn Ísland. Við hlökkum til að taka á móti Discover Airlines.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×