Þeir sem vilji moka yfir niðurstöðuna vilji fresta fundinum Jón Þór Stefánsson skrifar 29. desember 2024 14:24 Bryndís Haraldsdóttir og Sigríður Á. Andersen komust inn á þing í nýafstöðunum kosningum. Helga Vala Helgadóttir hætti hins vegar á þingi á miðju síðasta kjörtímabili. Vísir/Vilhelm/Arnar Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki vita um nein góð rök fyrir því að fresta fyrirhuguðum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Umræða um frestun fundarins fram á haust hefur verið áberandi síðustu daga.
Þetta kom fram á Sprengisandi á Bylgjunni í dag, en þar ræddi Bryndís um stjórnmálin á árinu sem er að líða ásamt Helgu Völu Helgadóttur, lögmanni og fyrrverandi þingmanni Samfylkingarinnar, Sigríði Á Andersen, nýkjörnum þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, og Rósu Björk Brynjólfsdóttur, fyrrverandi þingmanni Vinstri grænna og Samfylkingar. „Það er búið að ákveða að halda landsfund í febrúar. Það er sú ákvörðun sem liggur fyrir. Núna fóru að spretta einhverjar fréttir af því að einhver hafi verið að velta því fyrir sér hvort það væri skynsamlegt að fresta þessum fundi, og hafa hann eitthvað síðar,“ sagði Bryndís. „Að það gæti mögulega orðið vont veður þessa helgi í febrúar eru ekki rök fyrir því að fresta landsfundi. En auðvitað er það alveg rétt að þegar þessi tímasetning var ákveðin þá var nú fólk að sjá fyrir sér að þetta yrði upptaktur að kosningum. Nú geri ég ráð fyrir því að það séu ekki endilega fjögur ár í kosningar, en ég á kannski ekki von á því að við séum að fara í kosningar næsta vor. Ég held að það verði aðeins lengri tími hjá þessari ríkisstjórn.“ Bryndís telur að Sjálfstæðismenn séu spenntir fyrir því að komast á landsfund, en slíkur fundur fór síðast fram árið 2022. „Ég hef ekki heyrt nein góð rök fyrir því að fresta þessum fundi. Ég segi að það sé orðið mjög tímabært að halda landsfund.“ Tveir ólíkir viðburðir Helga Vala sagði landsfund í aðdraganda kosninga og landsfund eftir kosningar vera tvö ólík fyrirbæri. „Þeir sem vilja ná að moka yfir árangurinn í síðustu kosningum vilja auðvitað seinka. Þeir sem vilja hlaða í byssurnar fyrir einhver framboð sín en hafa kannski ekki haft sviðið,“ sagði hún og gaf til kynna að Jens Garðar Helgason, nýkjörinn þingmaður flokksins, væri að íhuga framboð á næsta landsfundi, en þar sem hann sé nýkominn á sviðið myndi henta honum að fresta. Þess má geta að í samtali við fréttastofu í gær sagði Jens Garðar að Bjarni Benediktsson væri enn formaður flokksins, og algjörlega ótímabært að fara velta fyrir sér formannskjöri. Aðspurður um hvort hann ætli í formannsframboð sagði Jens: „Það er alls ekki þannig. Ég hef ekkert hugsað út í þetta.“ Mikilvægt að vera ekki í átökum í marga mánuði Að mati Sigríðar, sem var lengi í Sjálfstæðisflokknum, eru kostir og gallar í báðum valkostum, að halda fundinum á settum tíma og í frestuninni. „Ég hef í sjálfu sér ákveðna samúð með því að fresta þessu ef menn eru að horfa til þess að skipta um forystu í flokknum þá er ekkert óskynsamlegt, eins og Helga vala kallar það, að leyfa fólki að láta fólk sitt skína,“ segir hún. „Fyrir almenna flokksmenn sem ætla að fara að kjósa nýja forystu er ekkert skrýtið að þeir vilji sjá aðeins framan í fólk í þessum nýju aðstæðum.“ Að mati Sigríðar er þó mikilvægt að stjórnarandstaðan sé funkerandi á þinginu. „Að flokkar séu ekki í innanflokksátökum svo mánuðum skipti.“ Nýr formaður utan þings? Sigríður sagði að sér þætti áhugavert að sjá hvort sjálfstæðismenn myndu láta á það reyna að velja formann sem er utan þings. „Ef einhvern tímann er tækifæri þá er það kannski núna að velja formann sem er ekki í þingflokknum. Þessi hugmynd hefur oft komið upp, en íhaldsamir menn verið á þeirri skoðun að formaður flokks verði að sitja á þingi.“ Bryndís tók fram að hún sæi ekki fyrir sér að næsti formaður flokksins yrði utanþings.
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025 Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Innlent Fleiri fréttir Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs „Erum við að fara að deyja?“ Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Sjá meira