Erlent

Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári

Kjartan Kjartansson skrifar
Hringir Satúrnusar eru eitt tilkomumesta fyrirbærið í sólkerfinu okkar. Myndina tók Cassini-geimfarið árið 2009. Skugginn sem sést er af tunglinu Títani.
Hringir Satúrnusar eru eitt tilkomumesta fyrirbærið í sólkerfinu okkar. Myndina tók Cassini-geimfarið árið 2009. Skugginn sem sést er af tunglinu Títani. NASA/JPL/Space Science Institute.

Krúnudjásn sólkerfisins, hringir Satúrnusar, hverfa sjónum manna í mars. Þeir verða þó aðeins „horfnir“ í nokkra daga. Fyrirbærið á sér stað á um fimmtán ára fresti þegar sjónlína frá jörðinni er beint á rönd hringanna.

Hringir Satúrnusar eru eitt mikilfenglegasta fyrirbæri sólkerfisins og helsta kennileiti þessarar næststærstu reikistjörnu sólkerfisins. Útlit þeirra er breytilegt frá jörðinni séð eftir því sem afstaða hnattanna breytist í sólkerfinu.

Yfirleitt horfum við annað hvort ofan á hringina eða neðan á þá eftir því hvort suður- eða norðurpóll Satúrnusar hallar að jörðinni. Tvisvar á hverju Satúrnusarári, á um fimmtán ára fresti, er sjónlínan frá jörðinni við Satúrnus beint á fleti hringanna. Vegna þess hversu hlutfallslega næfurþunnir hringirnir eru virðast þeir þá hverfa algerlega sjónum frá jörðinni séð, að því er kemur fram í umfjöllun Stjörnufræðivefsins um hringina.

Næst gerist þetta 23. mars og stendur í nokkra daga. Satúrnus verður þá hins vegar of nærri sólinni á himninum til þess að hægt verði að skoða reikistjörnuna í sjónaukum. Kjöraðstæður verða aftur á móti til að njóta dýrðar Satúrnusar í haust þegar hann verður í svonefndri gagnstöðu. Þá verður jörðin á milli sólarinnar og Satúrnusar í sólkerfinu.

Til lengri tíma litið er búist við því að hringir Satúrnusar hverfi innan nokkur hundruð milljóna ára. Sífellt kvarnast úr þeim þegar ísagnirnar sem mynda falla inn í þyngdarsvið plánetunnar og gufa upp í lofthjúpi hennar. Talið er að hringarnir séu tiltölulega ungir, aðeins nokkur hundruð milljón ára gamlir og að þeir hafi myndast þegar ístungl splundraðist.

Satúrnus er ekki eina reikistjarnan í sólkerfinu sem skartar hringjum. Júpíter, Úranus og Neptúnus eru allir með hringi þótt þeir séu mun fátæklegri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×