Fótbolti

Ás­dís Karen orðin sam­herji Hildar í Madríd

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ásdís Karen hefur fært sig um set.
Ásdís Karen hefur fært sig um set. megapiksel.no

Ásdís Karen Halldórsdóttir er orðin leikmaður Madríd CFF í efstu deild spænska fótboltans. Þar er fyrir landsliðskonan Hildur Antonsdóttir.

Hin 25 ára gamla Ásdís Karen færði sig frá Val til Lilleström í Noregi fyrir ári síðan. Hún skoraði fjögur mörk í 21 leik fyrir Lilleström er liðið endaði í 4. sæti efstu deildar Noregs á síðasta ári.

Þessi sóknarþenkjandi leikmaður hefur verið viðloðinn íslenska landsliðið undanfarin misseri og lék sinn annan A-landsleik þegar Ísland mætti Bandaríkjunum í október síðastliðnum.

Madríd CFF er í 9. sæti La Liga kvenna með 17 stig að loknum 14 leikjum, átta stigum frá fallsæti og aðeins þremur stigum frá Tenerife sem situr í 6. sæti.

Liðið hefur aðeins skorað 14 mörk til þessa í jafn mörgum leikjum og á Ásdís Karen eflaust að hjálpa til við að hrista upp í sóknarleik liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×