Afhenda dómsmálaráðherra skýrslu um Geirfinnsmálið í næstu viku Lovísa Arnardóttir skrifar 16. janúar 2025 22:01 Jón Ármann Steinsson einn höfundur bókarinnar. Jón Ármann Steinsson bókaútgefandi vinnur nú að því, ásamt Sigurð Björgvini, að taka saman niðurstöður rannsóknar þeirra á því hver hafi myrt Geirfinn Einarsson 19. nóvember 1974. Niðurstöðurnar, og ýmis skjöl, verða afhent dómsmálaráðherra í næstu viku. Jón Ármann fór yfir málið í Reykjavík síðdegis í dag.
Jón gaf í nóvember út bókina Leitin að Geirfinni í nóvember á síðasta ári þegar það voru 50 ár frá því að Geirfinnur hvarf. Hann segir að í hana hafi þó vantað 13. kaflann. Hann vinni þeir Sigurð sérstaklega fyrir dómsmálaráðuneytið. „Til þess að rannsaka hvaða glæpur átti sér stað í Keflavík þegar Geirfinnur hvarf 19. Nóvember 1974, hvernig rannsóknin var gerð og af hverju hún er afvegaleiðing á því sem við erum búnir að uppgötva að raunverulega gerðist. Að Geirfinnur var drepinn þetta kvöld. Við vitum hver gerði það, af hverju og hvernig yfirhylmingin átti sér stað,“ segir Jón Ármann en rætt var við hann um þennan síðasta kafla í Reykjavík síðdegis í dag. Hann segir að miðað við þær upplýsingar sem þeir hafi og svo þær upplýsingar sem koma fram í lögregluskýrslum sé hægt að álykta að málið sé tilbúningur þegar það fer frá Keflavík til sakadóms Reykjavíkur. Allt í einu sé hvarf hans hnýtt saman við hvarf Guðmundar Einarssonar og úr verða Geirfinns- og Guðmundarmál. Hann segir þannig lögregluna í Reykjavík ekki efast um neitt sem kemur fram í lögregluskýrslunum í Keflavík. Upphafið að réttarglæpnum „Það er byrjun á réttarglæp sem endar með því að sex manns eru dæmd sek fyrir aðild að morði sem þau höfðu ekkert með að gera,“ segir Jón Ármann. Þau hafi verið sýknuð af þessu en glæpurinn sé enn óleystur vegna þess að lögreglan hafi engan vilja til að rannsaka sjálfa sig eða hvað raunverulega gerðist þetta nóvemberkvöld. Hann segir greinilegt að skýrslur lögreglunnar séu tilbúningur. Það séu nærri engar líkur á því að unglingar hafi tvívegis getað framið nánast sama glæpinn. Skýrslurnar um hvarf Geirfinns og Guðmundar séu nánast eins og það geti ekki staðist að þeir hafi báðir verið drepnir af unglingum vegna ósættis og svo grafnir í hraun. Hann segist velta því fyrir sér hvar þessi skáldskapur hafi orðið til og af hverju hann hafi orðið til. „Það er vegna þess að rannsakendur í Keflavíkurlögreglunni og hjá sýslumannsembættinu í Keflavík höfðu hagsmuni, persónulega, að því að afvegaleiðamálið og búa til eitthvað annað en raunverulega gerðist.“ Öll púslin komin á sinn stað Hann segir að í þessum 13. kafla sem eigi eftir að afhenda dómsmálaráðuneytinu sé búið að raða öllum púslunum í málinu saman og þau passi. Geirfinnur hafi verið myrtur af manni sem hann þekkti sem hafi verið að reyna að koma í veg fyrir að hann réðist að elskhuga konunnar hans. Þau hafi verið saman uppi í rúmi en konan hans haldið að Geirfinnur væri í bíó. Jón Ármann segir nágrannadreng Geirfinns hafa orðið vitni að þessu og hringt í lögregluna en einhver hjá lögreglunni hafi haft hag af því að koma í veg fyrir að sannleikurinn yrði leiddur í ljós. Jón Ármann segist vera að bíða eftir nokkrum skjölum til að hnýta þetta saman. Hann sé með vitni og flottar vísbendingar og skjalfest viðbrögð. „Þetta þarf lögreglan að skoða ef það er vilji til.“ Jón Ármann segir dómsmálaráðherra fá gögnin og skýrsluna í næstu viku. Um sé að ræða tugi þúsunda skjala sem fylgja en það sé verið að velja úr það mikilvægasta. Jón Ármann segist hafa rannsakað þetta mál í um tuttugu ár. Hann hafi verið plataður af lögreglunni, eins og alþjóð, og hafi til dæmis aldrei fengið tækifæri til að biðja Sævar Ciesielski afsökunar á því að hafa haldið að hann væri glæpamaður.
Guðmundar- og Geirfinnsmálin Reykjavík síðdegis Lögreglumál Dómsmál Tengdar fréttir Ný gögn í Geirfinnsmáli eigi að fara til lögreglu á Suðurnesjum Jón H.B. Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir best að byrja hjá lögreglu sé fólk með vitnisburð eða gögn sem geti varpað nýju ljósi á rannsókn lögreglu í einhverju máli. Útgefandi bókar um hvarf Geirfinns Einarssonar geti snúið sér til lögreglunnar á Suðurnesjum. 20. nóvember 2024 19:10 Nálgist að geta sagt með vissu hvað varð um Geirfinn Sigursteinn Másson, sem hefur legið yfir gögnum Guðmundar- og Geirfinnsmálið undanfarið, segist telja sig nálgast það að geta sagt með vissu hvað varð um Geirfinn. 2. október 2023 20:34 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Ný gögn í Geirfinnsmáli eigi að fara til lögreglu á Suðurnesjum Jón H.B. Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir best að byrja hjá lögreglu sé fólk með vitnisburð eða gögn sem geti varpað nýju ljósi á rannsókn lögreglu í einhverju máli. Útgefandi bókar um hvarf Geirfinns Einarssonar geti snúið sér til lögreglunnar á Suðurnesjum. 20. nóvember 2024 19:10
Nálgist að geta sagt með vissu hvað varð um Geirfinn Sigursteinn Másson, sem hefur legið yfir gögnum Guðmundar- og Geirfinnsmálið undanfarið, segist telja sig nálgast það að geta sagt með vissu hvað varð um Geirfinn. 2. október 2023 20:34