Fótbolti

FIFA setur for­setann í bann fyrir að kalla konu feita

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marta Cox gagnrýndi aðbúnað kvennalandsliðsins í Panama og fékk að heyra það til baka. Forseti sambandsins fór þar langt yfir línuna að mati FIFA.
Marta Cox gagnrýndi aðbúnað kvennalandsliðsins í Panama og fékk að heyra það til baka. Forseti sambandsins fór þar langt yfir línuna að mati FIFA. Getty/Hector Vivas

Forseti panamska knattspyrnusambandsins má ekki koma nálægt fótbolta á næstunni eftir úrskurð Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA.

Ástæðan eru ummæli hans um einn besta leikmann kvennalandsliðs Panama.

Manuel Arias, forseti panamska knattspyrnusambandsins, kallaði knattspyrnukonuna Mörtu Cox feita eftir að hún vogaði sér að gagnrýna skipulagið hjá sambandinu.

Cox þótti sambandið sinna kvennalandsliðinu ekki nægilega vel þrátt fyrir að liðið hafi tryggt sig inn á HM 2023. Forsetinn lét hana heyra það og fór þar langt yfir línuna.

„Arias forseti hefur verið settur í sex mánaða bann eða til 14. júlí 2025. Hann má á þeim tíma ekki taka þátt í neinu sem kemur að starfi panamska knattspyrnusambandsins,“ sagði í yfirlýsingu á heimasíðu sambandsins. ESPN segir frá.

Marta Cox sjálf samdi nýverið við tyrkneska félagið Fenerbahce en hún spilaði áður í Mexíkó. Hún er 27 ára gömul og lykilmaður hjá landsliðinu. Coz skoraði líka eitt marka landsliðsins á HM 2023.

Arias mun missa af fullt af leikjum karlalandsliðsins, leikjum í Þjóðadeild CONCACAF, leikjum í undankeppni HM 2026 og svo Gullbikarnum sem fer fram frá 14. júní til 6. júlí.

Arias baðst jafnframt afsökunar á ummælum sínum.

„Ég notaði mjög óheppileg orð og orð sem enginn ætti að nota,“ skrifaði Manuel Arias á X.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×