Innlent

E. coli fannst í neyslu­vatni

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Íbúum er ráðlagt að sjóða neysluvatn sitt.
Íbúum er ráðlagt að sjóða neysluvatn sitt. Vísir/Vilhelm

E. coli fannst í neysluvatni á Hornafirði. Íbúar í Nesjum og á Höfn eru beðnir um að sjóða allt neysluvatn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélagi Hornafjarðar

Mikilvægt er að láta vatnið bullsjóða samkvæmt leiðbeiningum Matvælastofnunar. Þá sé sniðugt að nota hraðsuðuketil þar sem þar bullsýður vatnið. Soðið vatn skal nota við matargerð, svo sem þegar matvæli eru skoluð, til tannburstunar, til böðunar ungbarna, til ísmolagerðar, kaffilögunar og fleira. 

Heilbrigðiseftirlit Austurlands kemur til með að taka fleiri sýni til greiningar eftir helgi og verða veittar frekari upplýsingar þá. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×