Körfubolti

Eignaðist barn á mánu­degi og mætti á æfingu á föstu­degi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kim Caldwell stýrði Tennessee Lady Vols liðinu viku eftir barnsburð.
Kim Caldwell stýrði Tennessee Lady Vols liðinu viku eftir barnsburð. Getty/Johnnie Izquierdo

Kim Caldwell tók sér bara nokkra daga í frí þrátt fyrir að hafa eignast barn á dögunum.

Caldwell er þjálfari körfuboltaliðs Tennessee háskólans en liðið er eitt af þeim stóru í kvennakörfuboltanum.

Caldwell náði að stýra liði sínu viku eftir að hún eignaðist barnið en það liðu bara fjórir dagar þar til að hún mætti á æfingu.

„Ég mætti aftur á æfingu á föstudaginn og við eignuðust soninn okkar á mánudegi,“ sagði Kim Caldwell á blaðamannafundi.

„Það var gott að koma til baka. Það er erfitt að yfirgefa litla barnið þitt en ég saknaði líka liðsins míns og leið smá eins og ég væri ekki til staðar fyrir þær,“ sagði Caldwell.

„Það var mjög gott að hitta þær aftur og vera í kringum þær. Komast aftur í mína rútínu,“ sagði Caldwell en vilja leikmennirnir hennar ekki fá að hitta Conor sem er nokkra daga gamall strákurinn hennar.

„Þær þurfa að bíða aðeins eftir því. Það er allt of mikið af sýklum hér,“ sagði Caldwell í léttum tón.

Kim Caldwell er 36 ára gömul og á sínu fyrsta tímabili með Tennessee. Hún þjálfaði áður hjá Glenville State í sjö ár og svo hjá Marshall háskólanum í eitt ár.

Conor Scott Caldwell fæddist 20. janúar 2025 og er hennar fyrsta barn.

Það fylgir sögunni að leikurinn á móti Suður Karólínu háskóla tapaðist 70-63.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×