Erlent

Al­þjóða­stofnanir draga saman seglin vegna Trump

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Flóttafólk frá Austur-Kongó í Rúanda.
Flóttafólk frá Austur-Kongó í Rúanda. epa/Moise Niyonzima

Stofnanir Sameinuðu þjóðanna huga nú að því að draga saman seglin í alþjóðlegu hjálparstarfi í kjölfar þess að stjórnvöld í Bandaríkjunum ákváðu að frysta alla erlenda aðstoð í 90 daga.

Filippo Grandi, framkvæmdastjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sendi starfsmönnum stofnunarinnar tölvupóst í nótt þar sem hann fyrirskipaði niðurskurð í verkefnum. Hann felur meðal annars ráðningabann og þá verða engar birgðir pantaðar í 90 daga, nema í algjörum neyðartilfellum.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur haldið því fram að ákvörðun Bandaríkjamanna muni ekki koma niður á lífsnauðsynlegri aðstoð, á borð við að tryggja fólki á vergangi mat, lyf og skjól. Hún varðaði verkefni sem tengdust þungunarrofi, getnaðarvörnum og kynjafræðum.

Raunin virðist hins vegar vera önnur, ef marka má Grandi, en hann segir ákvörðunina þegar hafa haft áhrif á flestar stofnanir Sameinuðu þjóðanna og fleiri alþjóðleg hjálparsamtök. Dregið hefði verið úr starfsemi og starfsmönnum sagt upp.

Horfa þyrfti til þess næstu vikur að vanda vel til verka og freista þess að draga úr áhrifunum á fólk á flótta og vergangi. Heilarfjöldi þeirra á heimsvísu er áætlaður um 122 milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×