Innlent

Sam­þykktu sam­hljóða að sparka ferðaþjónustu­fyrir­tæki úr Bakka­firði

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Bakkafirði í Langanesbyggð.
Frá Bakkafirði í Langanesbyggð. Vísir/Vilhelm

Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti samhljóða að segja upp leigusamningi við ferðaþjónustufyrirtækið North East Travel. Eigandi fyrirtækisins gagnrýndi neikvæðni og afskiptasemi íbúa sveitarfélagsins eftir lögreglurassíu þar í haust.

Tillaga byggðaráðs Langanesbyggðar um að segja upp samningi við North East Travel um leigu á skólabyggingu og gamla kaupfélaginu á Bakkafirði byggðist meðal annars á samskiptaerfiðleikum íbúa á Bakkafirði við leigutakann.

Björn S. Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, sagði Vísi að íbúar hafi meðal annars verið ósáttir við opnunartíma pöntunarþjónustu fyrir vörur sem North East Travel rak og aðgang að sal í skólanum. Það sem fyllti mælinn hafi hins vegar verið uppákoma síðasta haust þar sem Þórir Örn Jónsson, eigandi North East Travel, fór hörðum orðum um íbúa sveitarfélagsins eftir að sérsveit lögreglunnar handtók starfsmann hans í september.

Lýsti Þórir Örn samfélaginu á Bakkafirði sem því neikvæðasta og afskiptasamasta sem hann hefði kynnst. Hann hefði flúið staðinn vegna íbúanna þar.

Tillagan um að segja upp leigusamningnum var tekin fyrir á fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar í gær og samþykkt samhljóða. Uppsögnin tekur gildi 1. nóvember.

Þórir Örn sagði Vísi eftir að tillagan um uppsögnina kom frá byggðaráðinu að hann ætlaði sér að klára sumarið á Bakkafirði en síðan halda starfsemi sinni áfram á Suðurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×