Fótbolti

Lagði upp mark í fyrsta leiknum í Pól­landi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Gísli Gottskálk Þórðarson er nýgenginn til liðs við Lech Poznan.
Gísli Gottskálk Þórðarson er nýgenginn til liðs við Lech Poznan. lech poznan

Gísli Gottskálk Þórðarson lagði upp mark í sínum fyrsta keppnisleik fyrir pólska liðið Lech Poznan í öruggum 4-1 sigri gegn Widzew Lodz.

Úrvalsdeildin í Póllandi hófst aftur í dag eftir að hafa verið í vetrarfríi síðan í byrjun desember. Gísli samdi við félagið fyrr í mánuðinum, fór strax út í æfingaferð með liðinu til Tyrklands, spilaði tvo æfingaleiki þar og spilaði svo níutíu mínútur í fyrsta keppnisleiknum í dag.

Gísli lagði upp þriðja mark liðsins snemma í seinni hálfleik á Afonso Sousa, sem skoraði tvö mörk í leiknum líkt og Mikael Ishak.

Lech Poznan er í efsta sæti deildarinnar með fimm og sex stiga forskot á Raków og Jagiellonia, sem eiga þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×