Innlent

Barna­málaráðherra eignaðist barn með tánings­pilti þegar hún var 22 ára

Eiður Þór Árnason, Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/vilhelm

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra átti í ástarsambandi við fimmtán ára pilt þegar hún var sjálf 22 ára og eignaðist með honum son einu ári síðar. Faðirinn sakar hana um tálmun en segist samt hafa verið rukkaður um meðlag. Barnið fæddist fyrir rúmlega þremur áratugum.

Fylgst er með framvindu mála í vaktinni að neðan. Fyrst var greint var frá þessu í Speglinum á RÚV. Ásthildur leiddi unglingastarf í trúarsöfnuðinum Trú og líf við Smiðjuveg í Kópavogi þegar hún kynntist piltinum sem var þá fimmtán ára. Sá heitir Eiríkur Ásmundsson en var orðinn sextán ára þegar barnið var getið, að sögn Ásthildar.

Farið leynt með sambandið

Að sögn RÚV leiðbeindi Ásthildur Lóa drengnum sem hafi komið af brotnu heimili og þess vegna leitað í trúarsöfnuðinn. Jafnframt kemur fram í frétt RÚV að forsætisráðuneytið hafi verið upplýst um málið fyrir viku síðan og tjáð að erindið væri trúnaðarmál. Þrátt fyrir það hafi barnamálaráðherra fengið veður af því og sett sig í samband við sendandann. 

Forsætisráðuneytið vísar þessu á bug og hafnar því að ráðuneytið hafi rofið trúnað. Í upphaflegu erindi hafi sendandi óskað eftir fundi með forsætisráðherra án þess að fundarefnið væri tilgreint og í seinna erindi hafi fundarbeiðnin verið ítrekuð, tekið fram að málið varðaði menntamálaráðherra og að það væri í lagi að hann sæti fundinn. 

Eiríkur staðfestir í samtali við RÚV að þau hafi átt í ástarsambandi fljótlega eftir að hann leitaði í trúarsöfnuðinn. Leynd hafi alla tíð hvílt yfir sambandinu. 

Ekki náðist í Eirík eða Ingu Sæland, formann Flokks fólksins við vinnslu fréttarinnar. 

Fréttin hefur verið uppfærð. Fram kom í eldri fyrirsögn að Ásthildur hafi verið 23 ára þegar hún eignaðist barnið en hið rétta er að hún var á 23. aldursári þegar hún var barnshafandi.

Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×