Eygló þyngri en samt best allra Sindri Sverrisson skrifar 25. mars 2025 12:46 Íslenski hópurinn rakaði til sín verðlaunum á Smáþjóðamótinu í lyftingum á Möltu. LSÍ Þrátt fyrir að vera í miðjum undirbúningi fyrir EM, og geta því ekki keppt í sínum þyngdarflokki, þá vann Eygló Fanndal Sturludóttir sigur á Smáþjóðamótinu í ólympískum lyftingum á Möltu um helgina. Ísland vann liðakeppnina í þriðja sinn í röð.
Ísland vann einnig liðakeppni kvenna og varð í 2. sæti í liðakeppni karla. Eygló varð stigahæst allra kvenna á mótinu og það þrátt fyrir að keppa í -76 kg flokki en yfirleitt keppir hún í -71 kg flokki. Hún létti sig ekki fyrir mótið vegna þess að hún er í miðjum undirbúningi fyrir EM sem fram fer í Moldóvu í apríl. Eygló, sem er ríkjandi Evrópumeistari ungmenna og varð í 4. sæti á HM í desember, lyfti mest 106 kg í snörun um helgina og 130 kg í jafnhendingu en þar rétt missti hún lokatilraun sína, við 134 kg. Samanlagt lyfti Eygló því 236 kg og á hún nú öll þrjú Íslandsmetin í -76 kg flokki, rétt eins og í sínum vanalega þyngdarflokki. Nálægt Norðurlandametum Eygló tók metin af Guðnýju Björk Stefánsdóttur sem varð í 2. sæti í stigakeppni kvenna á mótinu á Möltu. Bergur Sverrisson varð í 2. sæti í stigakeppni karla. Ef Eygló hefði náð 134 kg í jafhendingu, og verið að keppa í sínum -71 kg flokki, þá hefði verið um að ræða 1 kg bætingu á Norðurlandameti hennar í samanlögðu. Hún lyfti nefnilega samtals 239 kg þegar hún varð í 4. sæti á HM í desember. Einnig hefði 134 kg verið bæting á Norðurlandameti Patriciu Strenius í jafnhendingu sem er 133 kg. Ísland endaði með 1.244,02 stig á Smáþjóðamótinu, Malta með 1.195,80 stig, Kýpur með 1.158,09 stig, Færeyjar 1.047,80 stig, Lúxemborg með 958,74 stig, Mónakó með 766,53 stig og San Marínó með 752,20 stig.
Lyftingar Mest lesið Fjölskyldu Arnórs hótað Fótbolti Alfreð Gísla: „Skemmdarverk á handboltanum“ Handbolti Tiger og Trump staðfesta sambandið Golf Fimm ára fangelsi fyrir að reyna að myrða meintan barnaníðing Sport Ingebrigtsen fer fyrir dóm: Faðirinn neitar en börnin munu bera vitni Sport Sagður hafa samið við Real og fá 2,2 milljarða á ári Enski boltinn Barton dæmdur fyrir að ráðast á eiginkonu sína Enski boltinn Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ Íslenski boltinn „Eru sex mörk ekki nóg til að þú haldir kjafti?“ Fótbolti Undraskot Curry fór ekki ofan í eftir allt saman Körfubolti Fleiri fréttir Elliði Snær átti sinn þátt í óvæntum sigri Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Barton dæmdur fyrir að ráðast á eiginkonu sína Enda án stiga á botni riðilsins Alfreð Gísla: „Skemmdarverk á handboltanum“ Sex marka sýning Íslands gegn Skotum Undraskot Curry fór ekki ofan í eftir allt saman Fimm ára fangelsi fyrir að reyna að myrða meintan barnaníðing Eygló í þyngri flokki en samt best allra Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Ekki pæla í því sem aðeins of feitur fyrrverandi leikmaður segir“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ „Aron í svona stóru hlutverki, það er búið“ Besta-spáin 2025: Í túninu heima Lífið í Brúnei einmanalegt Fjölskyldu Arnórs hótað „Eru sex mörk ekki nóg til að þú haldir kjafti?“ Myndi kannski hlusta ef þeir gætu bent á Gasa á korti Sagður hafa samið við Real og fá 2,2 milljarða á ári Ingebrigtsen fer fyrir dóm: Faðirinn neitar en börnin munu bera vitni Dagskráin í dag: Landsleikjahlénu lýkur Pochettino biður bandarísku þjóðina um þolinmæði Víkingar framlengja við „besta markmanninn í Bestu deildinni“ Reece James mætti aftur með látum í sigri Englands Evans farinn frá Njarðvík Aldís með níu mörk í naumum sigri Þór/KA vann í vítaspyrnukeppni og mætir Breiðabliki í úrslitaleik Boltastrákurinn orðinn þjóðhetja og fer frítt á undanúrslitin „Ég veit að hann verður ekki með okkur á næsta tímabili“ Lögmál leiksins: Menningin dáin hjá Heat Sjá meira