Neytendur

Tvö apó­tek sögðu pass við verð­lags­eftir­litið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Borgarapótek og Lyfjabúrið vildu ekki taka þátt í verðlagseftirliti ASÍ.
Borgarapótek og Lyfjabúrið vildu ekki taka þátt í verðlagseftirliti ASÍ. Borgarapótek/Lyfjabúrið

Rima apótek er ódýrasta apótekið í nýjum samanburði verðlagseftirlits ASÍ. Til skoðunar voru aðrar vörur en lyf, þær vörur sem finna má frammi í versluninni. Borgar apótek og Lyfjabúrið höfnuðu þátttöku, en á grundvelli þeirra gagna sem þar var aflað eru þau annað og þriðja dýrasta apótek landsins. Dæmi eru um að vörur kosti sex sinnum meira í apóteki en í stóru matvöruverslununum.

Þetta kemur fram í samanburði verðlagseftirlits ASÍ.

Þar segir að nokkru geti munað á verði eftir því hvaða vörur séu skoðaðar. Til dæmis sé Lyfjaval að meðaltali 15% dýrara en ódýrasti kosturinn, en Better You fæðubótarefni kosta að meðaltali 35% meira í Lyfjaval en þar sem þau séu ódýrust. Það sé iðulega í Rima apóteki. 

Aftur á móti voru New Nordic vörur að jafnaði ódýrastar í Lyfjavali.

Getur borgað sig að bera saman verð

Ýmsar vörur sem seldar eru í apótekum má einnig finna í lágvöruverðsverslunum. Verðlagseftirlitið tekur nokkur dæmi:

  • Nivea augnhreinsir (x-gentle, 125ml) kostaði 2.281kr í Borgar apóteki en 479kr í Bónus, næstum fimmfaldur munur. Varan kostaði einni krónu meira í Krónunni en Bónus.
  • By My Beard skeggsjampó kostaði 1.990kr í ÍslandsApóteki en 349kr í Nettó, næstum sexfaldur munur.
  • Gillette Cool Wave svitalyktareyðir kostaði tæpar 1.400kr í flestum apótekum, en aðeins 598kr í Bónus og 599kr í Krónunni.
  • Carefree flexi innlegg kostuðu 286kr í Bónus, 287kr í Krónunni, 288kr í Nettó og 585kr í Farmasíu.

Apótek geta í einhverjum tilfellum verið ódýrari en lágvöruverðsverslanir, þótt munurinn í þá átt sé iðulega minni að sögn verðlagseftirlitsins sem tínir til nokkur dæmi:

  • Hafkalktöflur, 60stk, kostuðu 2.790kr í Krónunni (og kosta enn) en voru (og eru) ódýrari í öllum apótekum sem skoðuð voru, fyrir utan Lyfjaval. Ódýrastar voru töflurnar í Lyfjaveri á 2.180kr en dýrastar í Lyfjavali á 2.855kr.
  • Solaray Once Daily Active Man fjölvítamín kostaði 3.061kr í Lyfjaveri og hefur verið á því verði síðan í haust, ef ekki lengur. Á megni könnunartímabilsins kostaði vítamínstaukurinn 3.599kr í Krónunni, eða tæpum 18% meira, og hefur síðan hækkað í 3.799kr, sem er 24% dýrara en í Lyfjaveri.
  • Veet Sensitive háreyðingarkrem með aloe vera kostaði 2.339kr í Nettó en aðeins 1.560kr í Apóteki Vesturlands í Ólafsvík.
  • Better You 5mg járnmunnúði kostar 2.021kr í Rima Apóteki en 2.399kr í Krónunni. Flestir aðrir BetterYou munnúðar eru hins vegar ódýrari í Krónunni.

Auglýsingar apóteka gjarnan villandi

Íslenskar verslanir hvetja oft til kaupa með afsláttum. Um þá gilda einhverjar reglur, til dæmis segir á vef Neytendastofu að útsala megi „ekki standa lengur en í sex vikur því þá er útsöluverðið orðið að venjulegu verði“.

Í einhverjum tilfellum fæst ekki betur séð en að lengri tími hafi liðið frá verðlækkun í einhverjum apótekum. Verðlagseftirlitið nefnir sem dæmi:

  • New Nordic Apple Cider hlaup í vefverslun Lyfjavals var selt á 2.621kr til 3. febrúar. Svo var það selt á „-20%“, eða 2.097kr, til 4. apríl, eða á hálfa níundu viku. Samhliða því var bætt við „Nýtt“ merkingu á vöruna sem er þar enn.
  • Siglufjarðarapótek hefur haft CeraVe Renewing fótakrem á 20% afslætti frá því í janúar síðastliðnum hið minnsta, en þá hóf verðlagseftirlitið skoðun á vefverslun apóteksins.
  • Rima Apótek hefur selt Nutrilenk Active, 30 hylki, og NutriLenk Gel, 100ml, á 25% afslætti frá því í janúar síðastliðnum hið minnsta, en þá hóf verðlagseftirlitið skoðun á vefverslun apóteksins.

Og svo mætti áfram telja.

Apótek Vesturlands ekki öll á sama verði

Verðlag á Apóteki Vesturlands virðist ekki hafa verið alfarið hið sama í útibúunum þremur í Borgarnesi, Akranesi og Ólafsvík. Til dæmis var Better You D-Lúx 1000iu 15ml munnsprey selt á 1.493kr í Borgarnesi þann 13. mars en á 2.045kr í Ólafsvík. Better You Magnesium Relax flögur kostuðu 2.413kr í Ólafsvík en 1.530kr í Borgarnesi. 

Á hinn bóginn kostaði Eylíf Smoother Skin & Hair 3.419kr í Ólafsvík en 4.850kr í Borgarnesi. Hafkraftur kostaði 2.650kr í Ólafsvík en 3.543kr í Borgarnesi.

Af 148 vörum sem bornar voru saman í Borgarnesi og Ólafsvík þann 13. mars voru 76 dýrari í Borgarnesi, 33 dýrari í Ólafsvík, og 39 á sama verði. Að meðaltali var verslunin í Borgarnesi 1,2% dýrari en í Ólafsvík.

Fram kemur í tilkynningu verðlagseftirlitsins að bornar hafi verið saman vörur sem finna mátti í minnsta níu apótekum. Aðeins hafi verið farið í apótek sem séu án aðgangsgjalds, svo sem í Costco. Samanburðurinn hafi farið fram frá miðjum febrúar til miðs mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×