Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið Árni Sæberg skrifar 23. apríl 2025 13:21 Rafmagnslínur Landsnets á Reykjanesi. Til stendur að stórefla flutningskerfið þar með Suðurnesjalínu 2. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Landsnet og Sveitarfélagið Voga af öllum kröfum landeigenda í Vogum, sem kröfðust þess að framkvæmdarleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 yrði ógilt.
Þetta segir í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp í dag. Þar segir að helstu málsatvik hafi verið þau að með ákvörðun Voga í júní 2023 hafi verið samþykkt að veita Landsneti framkvæmdaleyfi vegna áforma um að reisa raflínuna Suðurnesjalínu 2. Landeigendurnir hafi ásamt fleirum kært ákvörðunina til Úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála og krafist ógildingar hennar. Með úrskurði nefndarinnar í janúar 2024 hafi því verið hafnað að felld yrði úr gildi ákvörðun Voga um að veita framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2. Sama dag hafi Vogar gefið út framkvæmdaleyfi til Landsnets. Í pípunum í tuttugu ár Í dóminum segir að framkvæmdin Suðurnesjalína 2 feli í sér að reist verði ný 220 kV háspennulína milli tengivirkis við Hamranes í Hafnarfirði og tengivirkis á Njarðvíkurheiði í Reykjanesbæ. Suðurnesjalína 2 liggi í gegnum fjögur sveitarfélög: Hafnarfjörð, Grindavík, Sveitarfélagið Voga og Reykjanesbæ. Lengsti hluti framkvæmdarinnar nemi 17,26 kílómetrum innan Sveitarfélagsins Voga. Framkvæmdin sé liður í nauðsynlegri styrkingu raforkuflutningskerfis á Reykjanesi. Áform um lagningu Suðurnesjalínu 2 eigi sér langan aðdraganda en undirbúningur málsins nái allt aftur til ársins 2005. Samkomulag en líka málefnalegar ástæður Í dóminum segir að samkomulag frá árinu 2023 milli Voga og Landsnets hafi að mati dómsins haft áhrif á ákvörðun Voga um að veita framkvæmdaleyfið en önnur málefnaleg rök hafi jafnframt legið að baki henni. Þannig hafi einkum verið lagðir til grundvallar brýnir hagsmunir um raforkuöryggi fyrir íbúa sveitarfélagsins og almenning. Þá yrði minna rask á eldhrauni með loftlínu. Það verði almennt að teljast á forræði sveitarstjórnar að draga fram þá umhverfisþætti sem hún leggur áherslu á í mati sínu á því hvernig hagsmunum íbúa sveitarfélagsins sé best borgið. Enn fremur hafi Vogar horft til þess að með loftlínu væri afhendingaröryggi kerfisins í heild aukið með tilliti til náttúruvár. Þetta styðjist við gögn og upplýsingar sem aflað hafi verið frá sérfræðingum við meðferð málsins. Loftlína standi frekar af sér jarðskjálfta Í þessu sambandi megi sérstaklega vísa til skýrslunnar „Drög, Suðurnesjalína 2, greining á tjónanæmi vegna jarðvár“ sem unnin hafi verið af Eflu og Verkís í mars 2023. Þar komi fram að jarðskjálftar og jarðhreyfingar séu mun líklegri vá á línuleiðinni en hraunflæði og að loftlína muni standa mun betur af sér jarðskjálfta og aðrar jarðhreyfingar en jarðstrengur. Þá séu góðar líkur á að loftlína geti staðið af sér hóflegt hraunrennsli. Jafnframt segi í skýrslunni að varnaraðgerðir vegna jarðstrengs geti orðið flóknar og kostnaðarsamar. Þannig hafi það verið megin niðurstaða skýrslunnar að með tilliti til raforkuöryggis á Suðurnesjum vegna tjónnæmis gagnvart jarðvá væri loftlína betri kostur en jarðstrengur. Í því mati vegi þungt að viðgerðartími vegna tjóns á jarðstreng sé verulega lengri en loftlínu. Engir gallar Í niðurstöðukafla dómsins segir að með vísan til framangreinds og frekari umfjöllunar um málsmeðferð veitingar framkvæmdaleyfisins sé það niðurstaða dómsins að engir form- eða efnisannmarkar hafi verið á undirbúningi eða meðferð málsins sem geti leitt til þess að ógilt verði framkvæmdaleyfi sem Vogar veittu Landsneti vegna lagningar svonefndrar Suðurnesjalínu 2. Því væru Vogar og Landsnet sýkn af öllum kröfum landeigendanna og landeigendunum gert að greiða þeim 1,2 milljónir króna óskipt, hvoru um sig.
Orkumál Suðurnesjalína 2 Vogar Stjórnsýsla Sveitarstjórnarmál Dómsmál Úrskurðar- og kærunefndir Tengdar fréttir Rafmagn komið aftur á Suðurnesjum Rafmagn er komið aftur á Suðurnesjum en rafmagnslaust varð í Keflavík, Ásbrú, Sandgerði, Garði og víðar fyrir um klukkustund. 25. janúar 2024 16:06 Landsnet býr sig undir nokkrar sviðsmyndir á Reykjanesi Landsnet býr sig nú undir nokkrar sviðsmyndir ef til þess kemur að það muni gjósa á Reykjanesskaga og hraunflæðið myndi ógna flutningskerfi rafmagns á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu. 10. júlí 2023 11:48 „Það er ekkert hlustað“ Bæjarstjóri Voga er ekki bjartsýnn á að hlustað verði á sjónarmið sveitarfélagsins varðandi lagningu Suðurnesjalínu tvö. Hann átti fund með innviðarráðherra í dag um málið. 8. mars 2023 20:19 Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira
Rafmagn komið aftur á Suðurnesjum Rafmagn er komið aftur á Suðurnesjum en rafmagnslaust varð í Keflavík, Ásbrú, Sandgerði, Garði og víðar fyrir um klukkustund. 25. janúar 2024 16:06
Landsnet býr sig undir nokkrar sviðsmyndir á Reykjanesi Landsnet býr sig nú undir nokkrar sviðsmyndir ef til þess kemur að það muni gjósa á Reykjanesskaga og hraunflæðið myndi ógna flutningskerfi rafmagns á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu. 10. júlí 2023 11:48
„Það er ekkert hlustað“ Bæjarstjóri Voga er ekki bjartsýnn á að hlustað verði á sjónarmið sveitarfélagsins varðandi lagningu Suðurnesjalínu tvö. Hann átti fund með innviðarráðherra í dag um málið. 8. mars 2023 20:19