Innlent

Starfs­maður verslunar sleginn

Samúel Karl Ólason skrifar
Þrí gistu í fangaklefa í nótt en alls voru 87 mál bókuð í kerfi lögreglu frá klukkan fimm seinni partinn í gær til fimm í morgun.
Þrí gistu í fangaklefa í nótt en alls voru 87 mál bókuð í kerfi lögreglu frá klukkan fimm seinni partinn í gær til fimm í morgun. Vísir/Sammi

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst  í gærkvöldi tilkynning um líkamsárás þar sem starfsmaður verslunar á höfuðborgarsvæðinu hafði verið sleginn. Þegar lögregluþjóna bar að garði var gerandinn þó farinn af vettvangi og ekki fylgir sögunni í dagbók lögreglu hvort hann hafi verið gómaður seinna meir eða ekki.

Í öðru tilfelli barst tilkynning um þjófnað í verslun en þar reyndist sá grunaði ofurölvi og óviðræðurhæfur. Hann var vistaður í fangaklefa í nótt. Einnig var óskað eftir aðstoð á veitingastað vegna ölvaðs einstaklings sem var til vandræða. Honum var vísað út og hélt sína leið.

Lögregluþjónar höfðu einnig afskipti af erlendum einstakling sem grunaður er um að vera hér á landi án dvalarleyfis. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Þá var einn sem lenti í rafhlaupahjólslysi fluttur á bráðamóttöku til skoðunnar.

Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir í nótt grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Að minnsta kosti einn þeirra reyndist áður hafa verið sviptur ökuréttindum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×