Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Stefán Árni Pálsson skrifar 13. maí 2025 07:31 Hannes er framkvæmdastóri KKÍ í dag. vísir/lýður Framkvæmdastjóri KKÍ segir að eftir mikla vinnu hafi verið ákveðið að leyfa fjóra erlenda leikmenn á leikskýrslu á næsta tímabili. Allir mega vera inni á vellinum á sama tíma.
Um helgina ákvað stjórn KKÍ að gera breytingu á reglum varðandi erlenda leikmenn. Fjórir leikmenn mega vera á leikskýrslu. Þar má áfram aðeins vera einn Bandaríkjamaður í hverju liði og síðan þrír Evrópubúar. Í fyrri reglu máttu aðeins Bosman A leikmenn vera í hóp sem eru leikmenn með vegabréf innan EES. Nú hefur þeirri reglu einnig verið breytt og því allir leikmenn innan Evrópu nú leyfilegir, Bosman A og Bosman B. „Það er ekki bara á Íslandi þar sem er verið að ræða þessi málefni erlendra leikmanna. Þetta er til umræðu alltaf í Evrópu, kannski aðeins oftar hér og kannski svona á hverju einasta ári,“ segir Hannes S Jónsson framkvæmdastjóri KKÍ í Sportpakkanum í gærkvöldi en með nýrri reglu vonast Hannes að það komi meiri stöðuleiki á málið innan hreyfingarinnar. Á síðasta ársþingi KKÍ var þingsártillaga frá félögunum samþykkt með töluverðum meirihluta og þá átti að vinna nýja reglu með því að leiðarljósi að alltaf yrðu tveir Íslendingar í hverju liði á vellinum. „Við erum þarna að taka einnig tillit til þriggja ára reglunnar sem tæki mig ansi langan tíma að útskýra í þessu viðtali. En það hefðu verið margir leikmenn á þeirri reglu. Við horfðum þá á það þannig að í rauninni yrði ekki fækkun á erlendum leikmönnum ef þessi þriggja ára regla yrði enn þá inni og við erum bara að hætta með hana, hún er ekki til lengur,“ segir Hannes en hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni. Þegar átt er við þriggja ára regluna þá er verið að tala um evrópska leikmenn sem höfðu verið í íslenskri deildarkeppni í þrjú ár eða lengur og töldust í raun sem Íslendingar.
Bónus-deild karla Bónus-deild kvenna KKÍ Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira