Fótbolti

Alon­so tekur við Real fyrir HM fé­lags­liða

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Xabi hefur feril sinn sem þjálfari Real Madríd í Bandaríkjunum.
Xabi hefur feril sinn sem þjálfari Real Madríd í Bandaríkjunum. EPA-EFE/CHRISTOPHER NEUNDORF

Xabi Alonso fær ekki langt sumarfrí eftir að tímabilinu í Þýskalandi lýkur um næstu helgi. Kappinn er nefnilega að taka við Real Madríd og þarf að gera það áður en HM félagsliða hefst þann 15. júní næstkomandi.

Fyrr í dag var staðfest að Carlo Ancelotti, núverandi þjálfari Real Madríd, muni taka við landsliði Brasilíu. Sky í Þýskalandi er svo meðal þeirra miðla sem hafa greint frá því að hinn 43 ára gamli Alonso taki við af Ancelotti en sá orðrómur hefur verið hávær undanfarna mánuði.

Alonso hefur gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen. Undir hans stjórn varð liðið til að mynda Þýskalandsmeistari á síðustu leiktíð, bikarmeistari og fór alla leið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þar sem það mátti þola sitt eina tap á leiktíðinni. Það hefur gengið illa að fylgja þessu draumatímabili eftir en Alonso er enn talinn einn mest spennandi þjálfari heims.

Hann lék með Real Madríd frá 2009 til 2014 og er nú á leið aftur til Madrídar. Það er talið að Alonso hefði viljað fá örlítið lengra sumarfrí sem og lengri tíma til að undirbúa sig fyrir næsta tímabil en það er einfaldlega ekki í boði.

Real vill fá Alonso nær strax eftir að deildarkeppninni lýkur þar sem það þarf að undirbúa liðið fyrir HM félagsliða sem fram fer í Bandaríkjunum í sumar. Hefur keppnin verið á milli tannanna á fólki þar sem leikmenn á hæsta getustigi hafa kvartað yfir skorti á frídögum og miklu álagi.

Þeir hafa ef til vill eitthvað til síns máls en ef við teljum leikina á HM félagsliða með tímabilinu 2024-25 þá hefur Real Madríd til að mynda spilað 66 leiki í öllum keppnum áður en leikar hefjast í Bandaríkjunum.

Fyrsti leikur Real Madríd undir stjórn Xabi Alonso fer fram í Miami þann 18. júní þegar spænski risinn mætir Al Hilal frá Sádi-Arabíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×