Handbolti

Spilar með til­finningum sínum: „Næst kýlir maður með vinstri“

Aron Guðmundsson skrifar
Tryggvi Garðar Jónsson varð tvöfaldur meistari með karlaliði Fram í handbolta á nýafstöðnu tímabili. Hann heldur nú út í atvinnumennskuna. 
Tryggvi Garðar Jónsson varð tvöfaldur meistari með karlaliði Fram í handbolta á nýafstöðnu tímabili. Hann heldur nú út í atvinnumennskuna.  Vísir/Sigurjón

Tryggvi Garðar Jóns­son, tvöfaldur meistari með Fram í hand­boltanum er á leið út í at­vinnu­mennsku. Tíma­bilið hjá honum var ekki allt eins og blómstrið eina, Tryggvi spilar með til­finningum sínum, þær leiða hann stundum í gönur en aftra því þó ekki að hann vinni titla.

„Maður þarf nú að halda þessu við þótt það sé búið að vera gaman hjá okkur upp á síðkastið. Maður þarf að hreyfa sig og sinna þessu, maður er nú íþrótta­maður,“ segir Tryggvi sem tekur á móti undir­rituðum í líkams­ræktar­salnum hjá Fram í Úlfarsár­dalnum nokkrum dögum eftir að Ís­lands­meistara­titillinn var tryggður og partýstandið sem því fylgdi næstu daga.

Fullkomið skref á þessum tímapunkti

Eftir tveggja ára veru hjá Fram er Tryggvi á leið út til Austurríkis í at­vinnu­mennskuna þar sem að hann hefur samið við eitt besta liðið þar í landi, Alpla Hard sem spilar undir stjórn Ís­lendingsins Hannesar Jóns Jóns­sonar.

„Þessi mögu­leiki hefur verið í ein­hvern tíma á borðinu hjá okkur, við höfum verið að velja úr en mér fannst þetta bara lang mest spennandi kosturinn. Að fara til Hannesar, þó svo að ég hafi ekki reynslu af honum þá er ég búinn að heyra marga góða hluti. Ég held að hann sé frábær þjálfari sem hugsar mjög mikið um líkam­legt at­gervi leik­manna sinna. Svo er Tumi Steinn Rúnars­son gamall sam­herji minn hjá Val þarna líka. Hann hefur sagt mér frábæra hluti af þessu félagi, ég tel þetta full­komið skref fyrir mig á þessum tíma­punkti.“

Kostirnir sem Tryggvi hafði úr að velja voru nokkrir þrátt fyrir að tíma­bilið fyrir hann, þrátt fyrir Ís­lands- og bikar­meistara­titil, hafi ekki gengið áfalla­laust fyrir sig.

„Það var eitt­hvað sem stóð til boða en ég hef náttúru­lega verið of­boðs­lega mikið meiddur. Ég byrjaði tíma­bilið með slitna hásin og kem ekki inn fyrr en í október/nóvember. Ég er að komast á skrið í desember þegar að ég fer úr axlar­lið og svo brýt ég á mér höndina. Það voru kostir á borðinu en mér fannst þetta lang­mest spennandi. Þetta var ekki erfitt val.“

Hannes Jón er þjálfari Alpla Hard.Vísir/Getty

En hvað er það sem gerir lið Alpla Hard spennandi val­kost?

„Hlut­verkið sem Hannes er að bjóða mér. Hann er að bjóða mér gott hlut­verk svipað því sem ég hef verið í hjá Fram sem aðal þristurinn í vörn og svo keyra upp seinni bylgjuna og koma eitt­hvað inn í sókninni. Svo tel ég það líka spennandi að fá ís­lenskan þjálfara í þessu skrefi. Ég held það hjálpi mér rosa mikið með að koma mér inn í tungumálið þrátt fyrir að maður sé aðeins búinn að æfa sig í Duolingo.“

Þekkti alla frá húsverðinum yfir í fólkið í stúkunni

Framarar tvöfaldir meistarar á nýaf­stöðnu tíma­bili en það var skellur gegn Valsmönnum á síðasta tíma­bili sem hóf atlögu liðsins að titlunum tveimur.

„Við byrjuðum 15.apríl í fyrra eftir að Val­sararnir sópuðu okkur út og Rúnar Kára­son liðs­félagi minn kom með þessa frægu ræðu sem allir eru að tala um þar sem hann sagði að við værum nú­meri of litlir. Við vorum mjög laskaðir þarna en töluðum okkur saman, fórum að lyfta á fullu og gera okkur klára í að verða Ís­lands­meistarar að ári liðnu. Gera atlögu að öllum titlum. Einar þjálfari sagði það í upp­hafi tíma­bils að við ætluðum að stefna á alla titla, við gerðum það svo sannar­lega.“

Einar Jónsson, þjálfari Fram fer yfir málin með sínum mönnum.Vísir/Diego

Framarar sópuðu Val út í úr­slita­ein­vígi Olís deildarinnar, ein­vígi sem var sér­stakt að mörgu leiti fyrir Tryggva sem var þar að spila á móti upp­eldis­félagi sínu.

„Maður átti kannski ekki alveg von á því að sópa þeim út 3-0. Þetta er frábært lið en við vorum líka bara ógeðs­lega vel undir­búnir. Ég var sjálfur búinn að undir­búa mig ógeðs­lega vel fyrir þetta ein­vígi. Við vissum að við þyrftum að stoppa ein­hverja þarna og það tókst ógeðs­lega vel. Við vorum náttúru­lega bara stór­kost­legir í þessu ein­vígi, sóknar- og varnar­lega og stuðningurinn sem við fengum var náttúru­lega bara gígantískur á meðan að það vantaði aðeins upp á hjá Völsurunum. Þetta var bara frábært.“

Þetta voru mjög erfiðir leikir fyrir mig. Mér finnst erfitt að koma þarna, maður þekkir alla frá húsvörðunum yfir í þjálfarana og fólkið í stúkunni. Maður bjóst ekki við þessu en það var sætt að vinna þetta.“

Tryggvi tók skrefið frá Val árið 2023.

„Einar hafði sam­band við mig og mér fannst það strax spennandi, hann bauð mér frábært hlut­verk. Valur gerði það líka en mér fannst ég þurfa að gera eitt­hvað meira. Maður var fyrir aftan leik­menn eins og Magnús Óla og Róbert Aron sem mér finnst vera með betri leik­mönnum deildarinnar og hafa verið síðustu ár. Ég þurfti að gera eitt­hvað sjálfur þótt það hafi verið erfitt en ég sé ekki eftir því í dag.“

Skapið hljóp með hann í gönur

Tryggvi spilar með til­finningum sínum og þær geta farið með hann í gönur. Það sannaðist fyrr á tíma­bilinu, ein­mitt gegn gömlu félögunum í Val, þegar að hann fékk að líta rauða spjaldið. Hafandi ekki náð sér á strik í leikjum gegn Val yfir höfuð fór rauða spjaldið illa í Tryggva sem strunsaði inn í klefa og í bræði sinni kýldi hann í vegg. Fór það ekki betur en svo að hann braut á sér höndina og við tók vera fjarri vellinum.

„Það er lítið annað að gera en að hlægja bara að þessu í dag. Þetta var náttúru­lega helvíti fúlt. Ég er leik­maður sem spilar með til­finningum sínum, ég held það sjáist alveg inn á vellinum þegar að maður er að spila að maður gefur allt í þetta. Ég held það sé ekkert leyndar­mál, það sáu það allir sem sjá vildu að ég átti mjög erfitt upp­dráttar gegn Val. Var búinn að vera lé­legur í öllum leikjunum á móti þeim frá því að ég skipti yfir í Fram. Maður vill þetta ógeðs­lega mikið.“

Tryggvi Garðar Jónsson í baráttunni fyrr á tímabilinuVísir/Vilhelm

„Þetta var líka fyrsti leikurinn eftir að við urðum bikar­meistarar, það var talað um þessa bikarþynnku en við vildum allir komast yfir það. Ég átti hauskúpu­leik, fer eitt­hvað inn í klefa og maður missir sig. Ég læri bara af þessu. Ég vissi ekki alveg hverju ég ætti von á þegar að ég kem heim fúll eftir leik eftir að hafa brotið á mér höndina en ég er heppinn að vera með gott fólk í kringum mig sem komu mér strax aftur af stað. Það er allt í lagi með höndina núna, maður lærir af þessu, næst kýlir maður bara með vinstri.“

Leið hræðilega

Í kjölfar meiðslanna fyrr á tíma­bilinu var skiljan­lega and­leg líðan Tryggva Garðars ekki eins og best verður á kosið eftir þetta at­vik.

„Mér leið náttúru­lega bara hræði­lega. Ég vissi lítið hvað ég væri búinn að gera sjálfum mér þarna en var bara fúll og pirraður út í sjálfan mig. Gat ekkert annað. Ég talaði bara strax við Einar þjálfara, hann var ekkert rosa­lega sáttur með þetta en við ákváðum að koma mér aftur inn á gólfið eins fljótt og við gætum. Ég kom inn í undanúr­slitunum og gat varla kastað bolta því við vorum búnir að teipa höndina á mér í döðlur. Svona er boltinn. Ég fel það ekkert að ég er leik­maður sem spilar með til­finningum sínum, ég vil ógeðs­lega mikið gera þetta allt en stundum missir maður sig.“

Tryggvi Garðar Jónsson kveður Fram sem Íslands- og bikarmeistari og er nú á leið í atvinnumennskuna.vísir/Anton

Tíma­bilinu lauk hins vegar á góðu nótunum með Ís­lands­meistara­titli og fram undan spennandi tímar í at­vinnu­mennskunni í Austurríki þar sem að Tryggvi ætlar að halda áfram að vinna titla

„Maður er upp­alinn í Val og vill alltaf vinna titla. Ég vann með Val og núna með Fram og langar bara að halda því áfram. Næsta mark­mið mitt er bara að fara til Austurríkis og halda áfram að vinna þar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×