Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2025 19:30 Höskuldur Gunnlaugsson og Kyle McLagan fengu báðir rautt spjald en Höskuldur fær lengra bann. Vísir/Hulda Margrét Íslandsmeistarar Breiðabliks verða án fyrirliða sína í næstu tveimur leikjum eftir að aganefnd KSÍ dæmdi Höskuld Gunnlaugsson í tveggja leikja bann.
Höskuldur fékk rautt spjald í jafnteflinu á móti Fram, strax eftir að hann hafði skorað jöfnunarmark Blika undir lok leiksins. Höskuldur hrinti fyrst fyrirliða Fram og sneri síðan niður markvörð Framliðsins. Honum lenti síðan saman við Kyle McLagan hjá Fram sem fékk líka rauða spjaldið. Kyle McLagan fékk eins leiks bann en Höskuldur fékk því harðari refsingu vegna þessarar ofsalegu framkomu. Höskuldur tekur út leikbannið sitt í leikjum Blika á móti Stjörnunni á föstudagskvöld og í útileik gegn Aftureldingu í næstu viku. Nokkrir aðrir leikmenn voru líka dæmdir í bann vegna uppsafnaðra áminninga en þar á meðal er Tobias Thomsen, markahæsti leikmaður Blika. Blika verða því bæði án fyrirliða síns og markahæsta manns síns á móti nágrönnum sínum í Garðabæ. KA-maðurinn Ívar Örn Árnason verður í banni þegar KA fær Val í heimsókn á föstudag en Valsmaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson tekur einnig út leikbann í þeim leik. Kristinn átti frábæran leik í stórsigrinum á KR. FH-ingarnir Böðvar Böðvarsson og Tómas Orri Róbertsson verða í banni þegar FH-liðið mætir KR á sunnudag. Auk Kyle þá verður Framarinn Haraldur Einar Ásgrímsson í banni hjá Fram þegar liðið mætir ÍBV á sunnudag. Marko Vardic verður banni þegar ÍA heimsækir Vestra á sunnudag. Hér má sjá alla sem voru dæmdir í bann í öllum deildum.
Besta deild karla Breiðablik Fram Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Jökull rekinn frá Stjörnunni ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Sjá meira