Kemur út sem pankynhneigð Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. ágúst 2025 09:46 Julia Fox gaf út ævisögu sína, Down the Drain, árið 2023 sem fjallaði um reynslu hennar af skemmtanaiðnaðinum og lífi einstæðu móðurinnar. EPA Leikkonan og fyrirsætan Julia Fox hefur greint frá því að hún sé pankynhneigð. Fox sem vakti mikla athygli árið 2022 fyrir samband sitt með Kanye West lýsti sjálfri sér sem lesbíu í fyrra en hefur nú skilgreint kynhneigð sína nánar.
Fox braust fram á sjónarsviðið þegar hún lék í spennumyndinni Uncut Gems með Adam Sandler árið 2019 og varð síðan enn frægari þegar hún byrjaði með Kanye West árið 2022. Sambandið entist aðeins í mánuð en síðan þá hefur Fox gefið út ævisögu sína, Down The Drain, og unnið sem leikkona. „Ég er pankynhneigð; ég gæti laðast að hverjum sem er eða hverju sem er,“ sagði Fox í nýlegu viðtali við tímaritið Allure. „Ef það er bara líkamlegt þá laðast ég meira að kvenlíkamanum,“ sagði hún jafnframt í viðtalinu. Þá sagði hún líkama karlmanna ekki gera mikið fyrir sig en hún gæti þó vel laðast að huga þeirra. Miklu meira sem maður geti gert við tíma sinn Fox segist ekki sakna þess að vera í sambandi með karlmanni. „Það er svo miklu meira sem þú getur gert við tíma þinn en að bíða eftir því að sjá hvort einhver gaur ætli að senda þér skilaboð til baka eða ekki,“ sagði hún. Fox lýsti því einnig að það væri erfiðara fyrir konur að átta sig á því að þær væru hinsegin vegna þess að þær væru samfélagslega forritaðar fyrir karlmenn. „Með konu ertu með bestu vinkonu meðan karlmenn eru á endanum alltaf að fara að taka aðra karlmenn fram yfir þig,“ hefur Fox áður sagt um samskipti kynjanna. „Karlmenn elska aðra karlmenn, kallalega hluti og að horfa á hómóerótíska hluti eins og glímu og fótbolta. Í þessum eitraða kúltúr held ég að það sé ekki pláss fyrir þá að elska mig.“
Hinsegin Hollywood Bandaríkin Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Sjá meira