Óánægja með stjórnarandstöðu í hæstu hæðum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. október 2025 10:40 Stjórnarandstöðuþingmennirnir nítján stilltu saman strengi í Smiðju í febrúar og fór vel á með þeim. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins birti myndina á samfélagsmiðlum en hann sést hér til hægri gægjast á bak við vegg. Sigmundur Davíð Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar eykst á milli fjórðunga og hefur ekki verið meiri í á fimmta ár. Á sama tíma eykst óánægjan nokkuð og þar með fækkar í hópi þeirra sem höfðu ekki skoðun á ríkisstjórninni. Óánægja með störf stjórnarandstöðunnar er í hæstu hæðum.
Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu fyrir júlí til september. Mestu breytinguna á milli ársfjórðunga má merkja í óánægju með stjórnarandstöðuna sem ekki hefur mælst meiri í lengri tíma. Alls eru 62 prósent landsmanna ósátt við störf flokkanna þriggja í stjórnarandstöðu, þ.e. Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins. Í síðustu könnun voru 47 prósent óánægð með stjórnarandstöðuna. Alls segjast rúmlega 48 prósent manns ánægð með störf ríkisstjórnarinnar sem er tæplega tveggja prósenta aukning frá síðasta fjórðungi og um átta prósenta aukning frá fyrsta fjórðungi, þegar ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins var nýtekin til starfa. Níu af hverjum tíu Samfylkingarmönnum eru ánægðir með ríkisstjórnina, 75 prósent Viðreisnarfólks og 71 prósent kjósenda Flokks fólksins. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru óánægðastir með ríkisstjórnina eða sjö af hverjum tíu og hlutfallið er litlu minna hjá kjósendum Miðflokksins. Helmingur Framsóknarmanna er óánægður með ríkisstjórnina. Kjósendur Vinstri grænna, Sósíalistaflokksins og Pírata eru töluvert ánægðari en óánægðari með ríkisstjórnina. Enginn flokkanna náði kjöri á Alþingi í kosningunum í nóvember. Sé litið til aldurs eykst ánægjan með ríkisstjórnina með hækkandi aldri og er hún meiri á suðvesturhorninu en á landsbyggðinni. Þá eykst ánægjan með auknu menntastigi en til þess að gera er lítill munur á milli tekjuflokka.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Skoðanakannanir Samfylkingin Viðreisn Flokkur fólksins Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira