Viðskipti erlent

Fyrr­verandi for­stjóri fé­lags í eigu Ís­lendinga dæmdur fyrir fjár­drátt

Kristján Már Unnarsson skrifar
Finn Jakobsen, þáverandi forstjóri Magn í Færeyjum, í viðtali við Stöð 2 í Þórshöfn í fyrrasumar.
Finn Jakobsen, þáverandi forstjóri Magn í Færeyjum, í viðtali við Stöð 2 í Þórshöfn í fyrrasumar. Egill Aðalsteinsson

Fyrrverandi forstjóri færeyska orkufélagsins Magn, sem Íslendingar eiga stóra hluti í, hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt. Hann hafði verið ákærður fyrir „umboðssvik af sérlega alvarlegum toga“ með því að draga sér samtals 3,4 milljónir danskra króna, andvirði 65 milljóna íslenskra.

Olíufélagið Magn var áður að öllu leyti eigu Skeljungs, sem núna heitir Skel. Fyrir þremur árum seldi Skel meirihluta sinn í Orkufelaginu, móðurfélagi Magns, en átti eftir 48 prósenta hlut, sem síðan hefur minnkað niður í 20 prósent. Verktakinn Þorvaldur Gissurarson, ÞG Verk, er einnig stór eigandi með 17,5 prósenta hlut.

Það var í nóvember í fyrra sem tilkynnt var að stjórn Magns hefði komist að samkomulagi við forstjórann Finn Jakobsen um að hann léti samstundis af störfum. Þá var ekkert gefið upp um ástæður skyndilegs brotthvarfs hans úr forstjórastólnum, einungist sagt að það væri innanhússmál.

Núna hefur málið opinberast. Kringvarp Færeyja skýrði frá því fyrir helgi að Finn Jakobsen hefði verið ákærður fyrir fjárdrátt. Honum var gefið að sök að hafa í sex færslum millifært af reikningum vindmyllufélagsins Flatnahaga, dótturfélags Magns, samtals 3.445.000 danskar krónur yfir á reikning félags í Dubai. Samkvæmt ákærunni voru fjármunirnir nýttir til að greiða einkaútgjöld forstjórans.

Dótturfélag Magns, Flatnahagi, hefur staðið fyrir uppbyggingu vindmyllugarða í Færeyjum.Kringvarpið

Í fréttinni var jafnframt haft eftir stjórnarformanni Magns, Jan Petersen, að búið væri að endurgreiða alla fjárhæðina til Flatnahaga.

Kringvarpið greinir svo frá því í dag að Finn Jakobsen hafi verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt. Ennfremur að hann sætti sig ekki við dómsniðurstöðuna og hafi áfrýjað dómnum til landsréttar.

Tveir Íslendingar sitja núna í stjórn Magns, þeir Hannes Ágúst Jóhannesson og Páll Snorrason. Áður hafa meðal annarra setið í stjórn félagsins þeir Þorvaldur Gissurarson, Árni Pétur Jónsson, áður forstjóri Skeljungs, og Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður.

Þess má geta að Finn Jakobsen ræddi við Stöð 2 í fyrra um vindmylluuppbyggingu í Færeyjum í frétt sem sjá má hér:


Tengdar fréttir

Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu

Færeyingar stefna að því að hætta raforkuframleiðslu með dísilolíu fyrir árið 2030. Samtímis vinna þeir að því að skipta út olíukyndingu íbúðarhúsa fyrir varmadælur og hyggjast þrefalda fjölda vindmylla, úr þrjátíu í níutíu.

Stjórn SKEL boðar sex milljarða arð­greiðslu til hlut­hafa

Fjárfestingafélagið SKEL, sem fer með meirihluta í Styrkás, hefur ákveðið að bjóða um tíu til fimmtán prósenta eignarhlut í innviðafyrirtækinu til sölu en stefnt er að skráningu þess innan tveggja ára. Þá boðar stjórn SKEL arðgreiðslu til hluthafa – í tveimur jöfnum greiðslum – upp á sex milljarða, nánast allur hagnaður síðasta árs, en það er sambærileg fjárhæð og hefur verið greidd út samanlagt til hluthafa frá árinu 2018.

Selur hlut sinn í Orkufélaginu fyrir tæplega þrjá milljarða

SKEL hefur samþykkt kauptilboð frá færeysku félagi í allan 48,3 prósenta hlut íslenska fjárfestingafélagsins í S/P Orkufélaginu fyrir jafnvirði um 2,8 milljarða króna. Orkufélagið er eignarhaldsfélag utan um P/F Magn sem starfar í Færeyjum.

Fjármálastjóri Eskju og eigandi ÞG Verks taka sæti í stjórn Magns

Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju, og Þorvaldur Gissurarson, forstjóri og eigandi verktakafélagsins ÞG Verks, hafa tekið sæti í stjórn færeyska félagsins P/F Magn. Þetta kemur fram í frétt færeyska miðilsins KVF.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×