Kostnaður við stjórnsýslu borgarinnar mun hærri en landsmeðaltalið Jón Ísak Ragnarsson skrifar 1. nóvember 2025 14:06 Róbert segir að í ljósi stærðar ætti Reykjavíkurborg að hafa mjög góðar forsendur til að ná fram skilvirkni og stærðarhagkvæmni í umýslu sinni. Kostnaður við stjórnsýslu sé hins vegar mun hærri í borginni en gengur og gerist. Vísir Kostnaður við stjórnsýslu Reykjavíkurborgar er mun hærri en gengur og gerist í öðrum sveitarfélögum. Hann er 10 þúsund krónum hærri á hvern íbúa en landsmeðaltalið og 26 þúsund krónum hærri en á Akureyri. Stjórnsýslufræðingur segir áhugavert að stærsta stjórnsýslueining landsins skuli ekki ná að nýta stærðarhagkvæmni sína til að auka skilvirkni og hagræði. „
Reykjavíkurborg er fjölmennasta sveitarfélag landsins, og eitt það þéttbýlasta, og ætti sem slík að hafa mjög góðar forsendur til að ná fram skilvirkni og stærðarhagkvæmni í umsýslu sinni. Það er hins vegar ekki raunin.“ Þetta segir Róbert Ragnarsson, stjórnsýslufræðingur, fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur, og fyrrverandi leiðtogi sveitarstjórnarráðgjafar KPMG. „Ef borgin myndi ná landsmeðaltalinu, sem er hóflegt markmið, þá gæti hún sparað 500–1.000 milljónir króna á ári, sem hún gæti nýtt í aðra þjónustu en stjórnsýslu.“ „Einn milljarður jafngildir því til dæmis að bjóða upp á þjónustu fyrir 200 leikskólabörn.“ Stórar einingar geti misst fókus Róbert segir að í ljósi stærðar ætti kostnaður Reykjavíkur að vera minni en landsmeðaltalið, og sennilega ætti Reykjavík að vera ódýrust. „En eins og í öllu getur þetta verið flókið. Rannsóknir hafa sýnt að þegar einingar verða stórar, þá missa menn fókus. Þá verða til hlutverk sem ekki er þörf á, eitthvað verkefni sem var sett af stað einhvern tímann, sem er ekki þörf á lengur, það er samt haldið áfram með það.“ Kostnaður við stjórnsýslu á hvern íbúa hjá nokkrum sveitarfélögum síðustu þrjú ár, samkvæmt ársreikningum frá árbók sveitarfélaga. „Svona kerfi á oft erfitt með að losa sig úr tímabundnum verkefnum, þannig kostnaður helst inni.“ Sex hundruð millistjórnendur hjá borginni „Það eru rúmlega sex hundruð stöðugildi í stjórnsýslu borgarinnar. Það er fólk sem er ekki toppstjórnendur, og er ekki að vinna í beinum tengslum við íbúana. Þetta eru verkefnastjórar, millistjórnendur, hérna getur flækjustigið orðið mikið.“ Borgin velti um 200 milljörðum króna á ári, sem 23 borgarfulltrúum og ellefu þúsund starfsmönnum borgarinnar sé falið að ráðstafa með hagkvæmum hætti. „Til að uppfylla hlutverk sitt þarf borgin m.a. að verja fjármunum í grunnþjónustu eins og leikskóla, í lífsgæði sem felast m.a. í frístundum og menningu og rekstur innviða.“ „Þegar litið er til umsýslu borgarinnar, stjórnsýslu, fjármálaumsýslu, stoðþjónustu og eftirlits, þá er myndin athyglisverð. Árið 2024 kostaði þessi umsýsla um 13 milljarða króna, eða um 94 þúsund krónur á hvern borgarbúa. Landsmeðaltal allra sveitarfélaga er hins vegar 84 þúsund krónur á mann.“ Hægt er að nálgast ársreikninga sveitarfélaganna á í Árbók sveitarfélaga á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Rekstur hins opinbera Reykjavík Borgarstjórn Stjórnsýsla Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira