Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2025 15:32 Alexander Isak hefur misst af síðustu leikjum Liverpool en verður með sænska landsliðinu í komandi landsliðsglugga. EPA/ADAM VAUGHAN Arsenal-framherjinn Viktor Gyökeres verður ekki klár fyrir komandi leiki Svía í undankeppni HM í fótbolta og var því ekki valinn. Alexander Isak er hins vegar í hópnum.
Nýi landsliðsþjálfarinn Graham Potter kynnti sinn fyrsta hóp í dag en Svíþjóð mætir Sviss og Slóveníu í undankeppni HM í næstu viku. Stjörnuframherjanum Gyökeres var skipt út af í hálfleik í leik Arsenal gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Hann glímir við vöðvameiðsli. Liverpool-maðurinn Alexander Isak hefur aftur á móti glímt við meiðsli í læri og hefur ekki spilað síðan í 5-1 sigrinum á Eintracht Frankfurt fyrir tveimur vikum. Hann er þó klár í landsleikina. „Alex er ekki tilbúinn til að spila tvo níutíu mínútna leiki, en hann er tiltækur,“ segir Potter á blaðamannafundi þar sem hann kynnti hópinn sinn. Hinn fimmtugi Potter tók nýlega við af Jon Dahl Tomasson sem landsliðsþjálfari en Tomasson var rekinn eftir slæma byrjun Svía í undankeppni HM. Svíþjóð er aðeins með eitt stig eftir fjóra leiki og þarf því að fara í umspil næsta vor til að reyna að tryggja sér sæti á HM. Svíar geta komist í það umspil vegna árangurs á síðustu leiktíð í Þjóðadeildinni. View this post on Instagram A post shared by SVT Sport (@svtsport)
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Sjá meira