Játaði hópnauðgun og vildi komast í frí til heimalandsins Árni Sæberg skrifar 5. nóvember 2025 16:40 Maðurinn mun farbanni til 2. febrúar næstkomandi. Hann hefur þegar sætt farbanni frá 25. október í fyrra. Vísir/Viktor Freyr Maður sem sætir ákæru fyrir, og hefur játað, að hafa nauðgað ólögráða stúlku í félagi við annan mann, sætir áframhaldandi farbanni til byrjunar febrúar. Geðlæknar hafa metið hann sem svo að refsing sé ekki líkleg til að bera árangur.
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar, sem staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá því daginn áður, um að maðurinn skildi sæta farbanni til 2. febrúar næstkomandi. Hann hefur þegar sætt farbanni frá 25. október í fyrra. Meint atvik málsins munu hafa átt sér stað að nóttu til í ágústmánuði í fyrra. Fréttastofa hefur ákæru málsins undir höndum, en mörg atriði hennar hafa verið afmáð. Úbjuggu myndskeið af nauðguninni Mönnunum tveimur er gefið að sök að hafa nauðgað stúlkunni með því að notfæra sér ölvunarástand hennar þar sem hún hafi ekki getað spornað við verknaðinum vegna ölvunar og svefndrunga. Í ákærunni segir að báðir þeirra hafi haft við hana samræði og annar þeirra einnig haft við hana önnur kynferðismök. Þá eru mennirnir sagðir hafa í sama skipti útbúið myndskeið af þessari meintu nauðgun án samþykkis og vitneskju stúlkunnar. Sakhæfur en ekki líklegt að refsing beri árangur Í úrskurðinum segir að við þingfestinu málsins hafi maðurinn óskað eftir fresti til þess að taka afstöðu til sakargifta þar sem til stæði að dómkveðja matsmann til þess að meta sakhæfi og geðrænt heilbrigði hans. Í kjölfar þess að undirmat lá fyrir hafi þess verið beiðst af hálfu Héraðssaksóknara að fram færi yfirmat. Samkvæmt niðurstöðu yfirmats sem framkvæmt var af tveimur geðlæknum sé það talið ólíklegt að refsing muni bera árangur í máli mannsins. Í almennum hegningarlögum segir að hafi maður sem vinnur refsivert verk verið andlega miður sín, svo sem vegna vanþroska, hrörnunar, kynferðilegs misþroska eða annarrar truflunar, en þetta ástand hans sé ekki á svo háu stigi að hann sé ósakhæfur í skilningi laganna, skuli honum þá refsað fyrir brotið, ef ætla megi eftir atvikum og eftir að læknisumsagnar hefur verið leitað, að refsing geti borið árangur. Játaði skýlaust Mál mannsins hafi verið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í lok október þar sem hann tók afstöðu til sakargifta, en hann hafi skýlaust játað þá háttsemi sem honum er gefið að sök samkvæmt ákæru. Þó liggi fyrir að ágreiningur er uppi í málinu um hvort að maðurinn skuli sæta refsingu vegna brota sinna og þar af leiðandi muni fara fram aðalmeðferð í byrjun desember. Ætlaði að dvelja lengi í upprunalandinu Í greinargerð Héraðssaksóknara með kröfu um farbann yfir manninum segir að hann sé af erlendum uppruna og hafi hugað á ferðalag af landi brott í desember síðastliðnum. Þar hafi hann hugast dvelja í langan tíma ásamt fjölskyldu sinni í upprunalandi þeirra. Með vísan til alvarleika málsins telji Héraðssaksóknari hættu á að maðurinn muni reyna að komast úr landi eða leynast, ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar gangi hann laus meðan mál hans er til meðferðar hjá dómstólum. Í staðfestum úrskurði héraðsdóms segir að að mati dómsins verði fallist á það með Héraðssaksóknara að brýnt sé að tryggja nærveru mannsins meðan máli hans er ólokið, enda hætt við að hann muni, í ljósi erlendra fjölskyldutengsla, reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar, verði ekki gerðar ráðstafanir í því skyni.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Sjá meira