ESA segir Ísland þurfa að herða sig í loftslagsmarkmiðum sínum Kjartan Kjartansson skrifar 6. nóvember 2025 16:11 Jóhann Páll Jóhannsson er umhverfis- orku og loftslagsmálaráðherra. Hann kynnti nýtt landsmarkmið Íslands um 50-55 prósent samdrátt í samfélagslosun í september. Íslensk stjórnvöld sögðu ESA í mars að aðgerðir þeirra gætu skilað rúmlega 27 prósent samdrætti á tímabilinu. Vísir/Anton Brink Bæði Ísland og Noregur þurfa að standa sig betur til þess að uppfylla loftslagsmarkmið fyrir árið 2030, að mati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Áætlanir sem íslensk stjórnvöld sendu inn um frekari aðgerðir eru töluvert bjartsýnni en opinber stofnun sem birti tölur um losun í sumar.
Íslensk stjórnvöld eru skuldbundin til þess að draga úr svonefndri samfélagslosun gróðurhúsalofttegunda um 29 prósent borið saman við árið 2005 fyrir árið 2030 samkvæmt EES-löggjöf. Fram að þessu nemur samdrátturinn 7,7 prósentum. Undir samfélagslosun fellur meðal annars losun frá samgöngum, sjávarútvegi og landbúnaði. Þrátt fyrir það segir ESA í nýrri ársskýrslu um árangur Íslands og Noregs að gert sé ráð fyrir að Ísland nái núverandi markmiðum sínum þegar tekið sé tillit til nýrra aðgerða sem séu í undirbúningi og þeirra sveigjanleika í losunarbókhaldinu sem séu í boði. Áætlanir sem hafi verið sendar ESA í mars, og innihaldi fyrirhugaðar aðgerðir, geri ráð fyrir að losun á Íslandi dragist saman um 27,1 prósent fyrir árið 2030. Það er umtalsvert bjartsýnna að nýjasta mat Umhverfis- og orkustofnunar á áhrifum fyrirliggjandi aðgerða frá því í ágúst. Þegar stofnunin kynnti bráðabirgðatölur um losun ársins 2024 áætlaði hún að samdrátturinn fyrir 2030 gæti numið 23 prósentum. Við það mat var aftur á móti aðeins tekið tillit til þeirra aðgerða sem eru þegar í framkvæmd eða fjármagnaðar, ekki þeirra sem rætt hefur verið um eða eru á hugmyndastigi. Langt frá endanlegu markmiði fyrir tímabilið Mat ESA segir heldur ekki alla söguna. Ísland og Noregur eru í samfloti með Evrópusambandinu með loftslagsmarkmið gagnvart Parísarsamkomulaginu. Markmið Íslands um 29 prósent samdrátt var hlutdeild landsins í eldra markmiði ESB um fjörutíu prósent samdrátt fyrir lok þessa áratugs. ESB uppfærði markmið sitt, eins og Parísarsamkomulagið gerir ráð fyrir að ríki geri reglulega, og stefnir nú að 55 prósent samdrætti fyrir árið 2030. Hlutdeild Íslands í því hefur enn ekki verið ákvörðuð en gert er ráð fyrir að hún verði 41 prósent. ESA bendir þannig á að á meðal áskorana Íslands sé að núverandi markmið endurspegli ekki þennan aukna metnað Evrópusambandsins þar sem það hafi ekki verið fært inn í EES-samninginn ennþá. Jafnvel þótt áætlun stjórnvalda um að 27 prósent samdráttur næðist fyrir lok áratugsins væri það þannig víðsfjarri þeim 41 prósent samdrætti sem Ísland verður raunverulega skuldbundið til þess að ná. Þurfa að ná tugum prósenta á fimm árum Aðildarríkjum Parísarsamkomulagsins er skylt að skila svonefndum landsákvörðuðum framlögum og uppfæra þau. Í fyrra kom í ljós að íslenskum stjórnvöldum hefði ekki verið heimilt að skila inn sameiginlega 55 prósent markmiðinu með Evrópusambandinu. Því skiluðu stjórnvöld inn nýju framlagi til samningsins í september. Þar var því heitið að stefnt yrði að 41 prósenti samdrætti í samfélagslosun og umtalsverðum samdrætti í losun frá landi. Samhliða var kynnt markmið um 50-55 prósent samdrátt fyrir 2035. Eigi þetta nýja markmið að ganga eftir þarf að draga úr samfélagslosun um tugi prósenta á aðeins rúmum fimm árum. Til samanburðar dróst losunin saman um 7,7 prósent á síðustu tuttugu árum. Losunin jókst um rúm tvö prósent á milli ára í fyrra. Setja markið hærra austan Atlantshafsins Norðmenn hafa bæði sett markið hærri en Íslendingar og náð meiri árangri samkvæmt skýrslu ESA. Núverandi markmið norskra stjórnvalda er fjörutíu prósent samdráttur fyrir lok þessa áratugs. Frá 2005 nemur hann nú 18,4 prósentum. Losun í Noregi dróst saman um 2,9 prósent á milli ára í fyrra. Þær áætlanir sem Norðmenn lögðu fram til ESA í vor gera ráð fyrir að samdrátturinn nemi 48,7 prósentum fyrir 2030. Fréttin hefur verið uppfærð með skýrara orðalagi um forsendur áætlana um samdrátt í losun sem stjórnvöld sendu ESA í vor annars vegar og mats Umhverfis- og orkustofnununar frá því í sumar hins vegar.
EES-samningurinn Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Noregur Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira