Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2025 09:29 Ilija Dokovic átti erfitt með að klára upphitun fyrir leik ÍA og Vals. sýn sport Serbneski körfuboltamaðurinn Ilija Dokovic, sem er nýgenginn í raðir ÍA, er ekki í sínu besta formi eins og sást bersýnilega í leiknum gegn Val.
Skagamenn töpuðu naumlega fyrir Valsmönnum, 81-83, í 6. umferð Bónus deildarinnar á fimmtudaginn. Þetta var fyrsti leikur ÍA í nýju íþróttahúsi á Jaðarsbökkum. Dokovic skoraði fimmtán stig í leiknum en var snemma byrjaður að blása, meira að segja áður en leikurinn hófst eins og farið var yfir í Bónus Körfuboltakvöldi. „Í upphitun er maðurinn gjörsamlega búinn á því,“ sagði Stefán Árni Pálsson í þætti gærkvöldsins. „Ég sat í stúkunni fyrir aftan bekkinn hjá Skaganum. Ég kann alveg að meta að menn séu með „dad-bod“. Maður er með það sjálfur og það er inn í dag. En þegar þú ert orðinn kófsveittur og farinn að blása fimm mínútur í leik því það eru tvær raðir í upphitun og þú þurfir að stoppa og aðeins að leggjast í gólfið,“ sagði Benedikt Guðmundsson. Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - Skagamaður í slæmu standi „Hann bað um skiptingu, nokkrum sinnum í leiknum því hann var orðinn þreyttur. Þegar hann kom út af, sérstaklega þegar leið á leikinn, var sjúkraþjálfarinn að nudda á honum lappirnar bara til að reyna að láta hann klára leikinn. Maður sér alveg að það eru gæði þarna en ég skil ekki af hverju standið er svona rosalega slæmt því hann var að spila í fyrra. Að mæta í svona lélegu standi, sem atvinnumaður í körfubolta, er bara óafsakanlegt,“ bætti Benedikt við. Þeir Teitur Örlygsson ítrekuðu samt að Dokovic væri hæfileikaríkur leikmaður enda á hann leiki með serbneska landsliðinu á ferilskránni. Í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir ÍA hefur Dokovic skorað 8,5 stig að meðaltali, tekið 3,0 fráköst og gefið 5,0 stoðsendingar. Umræðuna um Dokovic úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla ÍA Körfuboltakvöld Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira