Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu Eiður Þór Árnason skrifar 24. nóvember 2025 17:30 Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, telur að félagið muni að endingu fá rafmagnið greitt að fullu samkvæmt samningi. Vísir/Egill Norðurál hefur tilkynnt Orkuveitunni um greiðslufall vegna endurtekinna bilana í álveri þess á Grundartanga. Stjórnendur Orkuveitunnar gera ráð fyrir lægri rekstrarhagnaði í ár vegna þessa og að arðgreiðslur lækki um tvo milljarða króna á næsta ári. Álverið er stærsti einstaki viðskiptavinur Orkuveitunnar.
Orkuveitan birti árshlutauppgjör sitt í dag og samkvæmt því varð 6,7 milljarða króna hagnaður af rekstri samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins 2025. Á sama tíma samþykkti stjórn félagsins uppfærða fjárhagsspá eftir tilkynningu Norðuráls um greiðslufall. Nú er gert ráð fyrir eins milljarða króna lægri rekstrarhagnaði á yfirstandandi ári samanborið við fyrri fjárhagsspá og niðurskurði rekstrarkostnaðar um tvo milljarða á næsta ári. Einnig var samþykkt sex milljarða króna lækkun fjárfestinga árið 2026 og lækkun arðgreiðslna um tvo milljarða líkt og áður segir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Þar segir að samkvæmt raforkukaupasamningi við Norðurál beri fyrirtækinu að greiða fyrir umsamda orku, hvort sem fyrirtækið nýti hana eða ekki. Þrátt fyrir þetta hafi fyrirtækið nú tilkynnt Orkuveitunni að það muni einungis greiða fyrir það rafmagn sem álverið getur tekið á móti meðan gert er við bilanir. Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu „Ef marka má þær yfirlýsingar sem eigandi Norðuráls hefur gefið markaðsaðilum í Bandaríkjunum er Norðurál tryggt fyrir sínu tjóni, enda sé þetta almenn bilun. Tilkynning Norðuráls til Orkuveitunnar er hinsvegar á þeim nótum að boðað greiðslufall sé vegna óviðráðanlegra atburða á borð við eldgos eða stríðsátök. Þarna virðist mér ósamræmi,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, í tilkynningu. „Við munum fá rafmagnið greitt – á því leikur enginn vafi í mínum huga – en það eru mér mikil vonbrigði að fyrirtækið kjósi að haga sér með þessum hætti, að greiða ekki samkvæmt samningum en gera ráð fyrir að samningsbundin raforka sé tiltæk þegar því hentar,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, í tilkynningu. Helstu rekstrartölur úr yfirliti stjórnenda.Orkuveitan Heildarafkoma neikvæð Hagnaður varð af rekstri Orkuveitunnar á fyrstu níu mánuðum ársins sem nam 6,7 milljörðum króna líkt og fyrr segir. Á sama tímabili árið 2024 var hagnaðurinn 5,1 milljarður og afkomubatinn því 31%. Á sama tíma var heildarafkoma samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. september 202 tap upp á 2,2 milljarða króna. Rekstrartekjur uxu um 3,9% á tímabilinu milli ára en rekstrarkostnaður um 2,0%, að sögn Orkuveitunnar. Veltufé frá rekstri nam 22,1 milljarði króna fyrstu níu mánuðum þessa árs. Það er 6,9% aukning frá fyrra ári. Eiginfjárhlutfall heldur áfram að lækka og var 50,8% í lok september samanborið við 52,1% árið 2024 og 54,6% árið 2022. Árshlutareikningurinn er fyrir samstæðu Orkuveitunnar. Innan hennar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix. Reykjavíkurborg fer með 93,5% eignarhlut í Orkuveitunni. Akraneskaupstaður og Borgarbyggð eiga rest. Fréttin er í vinnslu.
Bilun hjá Norðuráli Orkumál Mest lesið Kaflaskil: „Allt í einu er ekkert í dagatalinu“ Atvinnulíf Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu Viðskipti innlent Tilefni til að varast svik á svörtum föstudegi Neytendur Makrílveiðimenn töpuðu baráttu sinni við ríkið Viðskipti innlent Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Viðskipti innlent Hjöðnun verðbólgu í sjónmáli Viðskipti innlent Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Neytendur Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Neytendur „Af hverju fara Hafnfirðingar með stiga í búð?“ Atvinnulíf Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Samstarf Fleiri fréttir Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu Makrílveiðimenn töpuðu baráttu sinni við ríkið Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Hjöðnun verðbólgu í sjónmáli Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni „Þetta eru auðvitað vonbrigði“ Fá grænt ljós á kaupin á Gæðabakstri Hætta rekstri fiskmjölsverksmiðju og tólf missa vinnuna GK Reykjavík minnkar við sig Minni eignamyndun en fleiri komist í eigið húsnæði með nýrri lausn á markaði Kristján lætur af störfum hjá Samherja Steinar Waage opnar á Akureyri Tekur við stöðu markaðsstjóra Kadeco Möguleiki á að verndaraðgerðirnar verði felldar fyrr úr gildi Sýn fær flýtimeðferð Ístak byggir Fossvogsbrú Fyrirtæki óvenju virk í fasteignakaupum í október Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Gera ráð fyrir svipuðum hagvexti og í Covid Íslandsbanki lækkar vexti Óboðlegt að stórir aðilar auki arðsemi í krafti fákeppni Bentu hvor á annan og hlutu ólík örlög Taka minna mark á leiðsögn nefndarinnar og spá lækkunum Fyrrverandi forseti Hæstaréttar fer yfir svör gervigreindarinnar Indó ríður á vaðið Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Sjá meira