Fjórtán marka tap Fram í Portúgal Sindri Sverrisson skrifar 25. nóvember 2025 21:32 Theodór Sigurðsson skoraði fjögur mörk í Portúgal í kvöld. vísir/Anton Íslands- og bikarmeistarar Fram urðu að sætta sig við fjórtán marka tap í Portúgal í kvöld, 44-30, í næstsíðasta leik sínum í Evrópudeildinni í handbolta.
Landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson er frá keppni vegna meiðsla og gat því ekki mætt Frömurum í kvöld en engu að síður vann Porto afar öruggan sigur. Munurinn var þegar orðinn þrettán mörk í hálfleik, 23-10. Dánjal Ragnarsson var markahæstur hjá Fram með átta mörk en Arnar Snær Magnússon, Viktor Sigurðsson og Theodór Sigurðsson skoruðu fjögur mörk hver. Porto er því efst í D-riðli með átta stig en Fram enn án stiga eftir fimm leiki. Elverum og Kriens eru með sex stig eftir 38-34 útisigur norska liðsins í kvöld, þar sem Tryggvi Þórisson var í liði Elverum. Fram á nú aðeins eftir leik sinn við Elverum í Noregi, næsta þriðjudag. Einar Bragi og Kristianstad í góðum málum Í Svíþjóð skoraði Einar Bragi Aðalsteinsson tvö mörk í góðum 34-26 sigri á Toulouse. Kristianstad er því í 2. sæti F-riðli með sjö stig, stigi á eftir Vardar og tveimur á undan Sesvete fyrir lokaumferðina en þá mætast Kristianstad og Sesvete í Svíþjóð. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði svo sex marka Kadetten í 30-27 tapi gegn Ademar León á Spáni. Kadetten er því neðst í H-riðli með fjögur stig en aðeins stigi á eftir Nexe og Ademar León, og tviemur á eftir Partizan fyrir afar spennandi lokaumferð.
Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Fótbolti Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira
Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn