„Ég hætti að stækka þegar ég var þrettán ára“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. desember 2025 10:01 Hafdís Renötudóttir er höfðinu hærri en kollegi sinn, Sara Sif Helgadóttir, en saman mynda þær markmannstvíeyki Íslands á HM. vísir Hafdís Renötudóttir er hæsti leikmaður íslenska landsliðsins á HM í handbolta. Hún prófaði einu sinni að vera skytta en var send strax aftur í markið.
Hafdís er 193 sentimetrar á hæð, og samkvæmt frétt Handball World hæsti leikmaður HM, en við nánari athugun kom í ljós að austurríski markmaðurinn Andjela Roganovic er 194 sentimetrar á hæð. Hafdís er því næsthæsti leikmaður mótsins. Ísland hefur spilað á móti Þýskalandi, sem er með mjög hátt lið að meðalhæð, og hina 187 sentimetra Violu Leuchter. Viola Leuchter er öflug skytta. Getty/Marco Wolf „Ég sá hana og hugsaði: Hún er risastór!.. en ég er stærri“ sagði Hafdís hlæjandi, en hún er líka vön því að vera sú hæsta í hópnum. „Ég hef verið það lengi, ég hætti að stækka þegar ég var þrettán ára sko, þannig að fermingarmyndin er bara eins og ég veit ekki hvað. En ég hef aldrei verið eitthvað óörugg með það.“ Það hefur líka hagnast Hafdísi vel að hafa hæðina með sér í liði í sínum markmannsstörfum, en hugsaði hún aldrei um að spila einhverja aðra stöðu? Vera stór skytta og skjóta fyrir utan? „Ég hefði kannski átt að fara á línuna, ég veit það ekki, það er bara í einhverju öðru lífi… Ég man líka að það var einn þjálfari í fimmta flokki sem sagði: Nú ferð þú bara í skyttuna… Svo prófaði ég tvær sóknir og hann sagði: Okei, beint í markið aftur“ sagði Hafdís þá. Hlynur Bæringsson er föðurbróðir Hafdísar. vísir/Hulda Margrét Hæðina segir hún fengna frá fjölskyldunni, eða föðurættinni sérstaklega. „Já, öll fjölskyldan er mjög hávaxin þannig að þetta kemur klárlega þaðan. Svo er föðurbróðir minn mjög hávaxinn, Hlynur Bæringsson, sem er í körfunni, þetta kemur líklega þaðan.“ Klippa: Hafdís: Hefði kannski átt að fara á línuna Ísland mætir Færeyjum í lokaleik HM klukkan 19:30 í kvöld. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á Vísi. Viðtalið við Hafdísi má sjá í spilaranum að ofan.
HM kvenna í handbolta 2025 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira