Svartfjallaland fylgir frábærum Þjóðverjum áfram Valur Páll Eiríksson skrifar 6. desember 2025 18:36 Þær þýsku hafa spilað einkar vel á mótinu hingað til. Alex Gottschalk/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images Þýskaland fer með fullt hús stiga í 8-liða úrslit á HM kvenna í handbolta. Svartfjallaland fylgir þeim þýsku upp úr riðli Íslands á mótinu.
Grannþjóðirnar Serbía og Svartfjallaland háðu hálfgerðan úrslitaleik um sæti í 8-liða úrslitum keppninnar fyrr í dag þar sem Serbum dugði sigur fyrir sæti á meðal átta bestu. Svartfellingar þurftu að treysta á önnur úrslit. Skemmst er frá því að segja að þær svartfellsku hreinlega léku sér að serbnesku liði sem sá aldrei til sólar. Svartfjallaland vann 16 marka sigur, 33-17, og var þar af leiðandi í öðru sæti með sex stig og Serbía úr leik. Spánn gat tekið annað sætið af Svartfjallalandi með sigri á taplausum heimakonum Þjóðverja síðdegis en snemma varð ljóst að ekki yrði af því. Þýskaland vann 29-25 sigur sem var aldrei í hættu. Þar af leiðandi vinnur Þýskaland riðilinn með fullt hús stiga og Svartfjallaland fylgir þeim þýsku áfram í 8-liða úrslitin á meðan Serbía og Spánn sitja eftir. Færeyjar geta stokkið upp fyrir Serbíu og Spán í riðlinum með sigri á Íslandi í kvöld en sá leikur hefst klukkan 19:30 og verður lýst beint hér á Vísi. Ísland leitar þar fyrsta sigursins í milliriðlinum.
HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Fótbolti „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira