Fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnainnflutning Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. desember 2025 08:50 Blazinic kom hingað til lands með Norrænu. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson Erlendur ríkisborgari, Marko Blazinic, hefur verið dæmdur til að sæta fangelsisvist í fjögur ár og sex mánuði vegna tilraunar til fíkniefnainnflutnings.
Maðurinn var dæmdur í héraðsdómi Reykjavíkur, fyrir að hafa freistað þess að flytja inn 6,7 kíló af kókaíni, sem hafði 68 til 70 prósent styrkleika, þann 4. september 2025. Fíkniefnin fundust við leit á Seyðisfirði, þaðan sem Blazinic var að koma með efnin frá Svíþjóð með Norrænu í gegnum Danmörku. Efnin voru í ellefu pakkingum í varahjólbarða og tveimur pakkningum undir ökumannssæti, í Volvo-bifreið. Blazinic játaði sök og samþykkti upptökukröfur. Samkvæmt dómnum veitti hann lögreglu þá aðstoð sem hann gat við rannsókn málsins en hann virðist eingöngu hafa haft það hlutverk að flytja efnin hingað til lands. Sagði hann fyrir dómi að hann hefði tekið verkið að sér gegn greiðslu í örvæntingu. Blazinic var dæmdur til að greiða um það bil 2,5 milljónir í málsvarnarlaun og annan sakarkostnað.
Dómsmál Fíkniefnabrot Norræna Múlaþing Smygl Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Sjá meira